af gufusuðu...
jæja, hér er komið það sem kallast því sakleysislega nafni "sumar" en á þessum síðustu og verstu tímum gróðurhúsaáhrifa hefur það hugtak þó fáar pósitívar tengingar lengur í þessum heimshluta. í dag lympaðist ég hálf gufusoðinn um skuggahliðar þessarar borgar og prísaði mig sælan yfir því að komast lifandi á næsta loftkælda kaffihús að hitta þórdísi og velti því fyrir mér á leiðinni hvort ekki væri svalara í forgarði helvítis. ekki kem ég til með að sakna þessa andskota í sumar, ég er ekki frá því að malbikið hafi verið farið að bárast þegar verst var um miðjan daginn. annars fékk ég bréf þess efnis í dag að við tilraunaeldhúskokkar hefðum fengið styrkinn sem við sóttum um til kvikmyndasjóðs til þess að kokka upp bíómynd um sigríði níelsdóttur. stafræna skál fyrir því. skelli hérmeð þremur myndum úr nýafstaðinni íslandsreisu með óvæntum útúrdúrum. tilvitnun dagsins kemur svo frá greg palast þar sem hann lýsir afleiðingum gróðurhúsaáhrifanna: "...the sea level will rise 3-6 feet which will eventually sink many coastal cities like los angeles. but it will also have negative effects."
orri.
orri.

1 Comments:
Það er alltaf jafn mikil gleði. Flottar myndir Orri, en ég varð ekki jákvæðari. Er enn að ná mér eftir anstyggilegar kosningar á fróni.
kv. fríða
Skrifa ummæli
<< Home