þriðjudagur, maí 09, 2006

hjól


hjól
Originally uploaded by orrdis.

2 Comments:

Blogger Dosti segir...

OK OK OK...Orri minn, ég sé að þú ert að taka þín fyrstu hjólaskref og oft þegar maður byrjar á einhverri dellu gerir maður mjög halló byrjendamistök. Ég ætla því að gefa þér góð ráð til að þú misstígir þig ekki svona fyrstu skiptin því þú gætir verið fældur og færð kannski aldrei kjarkinn til að hjóla aftur.

Til að byrja með sé ég engan vatnsbrúsa. Þú þarft að hafa a.m.k. tvo.

Brettin draga úr hraðanum, það ættirðu að vita kallinn.Láttu þau fjúka í hvelli.

Glitaugað á teinunum er kannski flott í Kanada en ef þú ferð að hjóla hér í Svíþjóð verður þú fyrir aðkasti.

Bjallan þyngir hjólið og þarf því miður að fjúka.

Svo þyrftirðu að lækka stýrið í botn og hækka sætið í botn. þannig að hallin niður að stýrinu sé um 20°

Þá er þetta bara komið.

5:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

ok dosti, ég hef heyrt að svíþjóð geti haft svona áhrif á þankaganginn svo ég erfi þetta ekkert við þig. ekki hika við að koma og fá hjólið lánað þegar þú ert kominn með gyllinæð eftir upphækkaða vínylhnefann. ég get skilið að maður flýti sér í mark með þetta stykki uppí rassgatinu.

10:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home