Fullt af myndum!
Eins og þið sjáið er Ásta í heimsókn og bloggsíðan komin með 'feislift'. Hér kemur runa af myndum, einhverjar gamlar og einhverjar frá því í gær. Það hefur verið frábært að hafa Ástu hérna og við höfum bæði slappað af og leikið túrista. Leigðum bíl og keyrðum til Rochester þar sem Orit var með sýningu og það var gaman að hitta þau Ynon og Mika. Stoppuðum við Niagara. Í síðustu viku var frábært veður, sól og hiti (fór uppí 20)en í dag var grenjandi rigning og hálf kalt. Held að spáin sé sæmileg. Mér gengur ágætlega að skrifa og er ég nokkuð á áætlun þó stundum sé erfitt að vera með hugann við ritgerðasmíð. En nú er svo stutt eftir.
Takið sérstaklega eftir þessu ótrúlega gallasamfestinga pari á myndunum sem hér koma á eftir. Ástu fannst voða fyndið að setja inn myndina af okkur við bílinn en ég er viss um að Ford býður okkur samning - þá á ég að sjálfsögðu bæði við bílaframleiðandann og módelskrifstofuna.
Erum við ekki að lúkka?
þ.
Takið sérstaklega eftir þessu ótrúlega gallasamfestinga pari á myndunum sem hér koma á eftir. Ástu fannst voða fyndið að setja inn myndina af okkur við bílinn en ég er viss um að Ford býður okkur samning - þá á ég að sjálfsögðu bæði við bílaframleiðandann og módelskrifstofuna.
Erum við ekki að lúkka?
þ.

6 Comments:
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
já, það þurfti heldur betur tölvunarfræðing til að setja upp gult - "slick" og "modern" útlit. En það er gaman að þessu. En hvar nákvæmlega er hljóðfærabúðin? og var eitthvað keypt þar?
ÚÚÚ Flott! Og veisla fyrir augað og andann!!!
Takk fyrir allar myndirnar!
Vona að þið haldið áfram að klæða ykkur í stíl þegar heim er komið!!
Nonni er aldrei til í neinar svona setteringar!!
Knús til allra!
Hildur
veiiiii veiiiii veiiiii
loksins loksins loksins
nú er ég ánægð með ykkur, rosa gaman að sjá allt þetta og ekki missa dampinn þótt Ásta tæknisinnaða fari...
Kári var ekkert smá flottur með fótboltaliðinu sínu, vá!
Þessar paramyndir minntu mig einhvernveginn á Karnabæsauglýsingar, man einhver eftir þeim? Vel meint samt sko.
Kossar og knús, Anna Sóley
já hver getur gleymt Karnabæ, við vorum einmitt að reyna að ná því lúkki.
þ.
Mér finnst þið lúkka ógeðslega kúl!!
og er hjartanlega sammála Önnu Sóleyju með Karnabæ & co,
Hef verið að skoða "gömlu" myndirnar frá dvölinni ykkar út um allt með Eyþóri og Ástþóri og þeir eru með nýjan ferðaglampa í augum.
Úgga frænka
Skrifa ummæli
<< Home