miðvikudagur, maí 10, 2006

af vorverkum...

jæja, ég sé að ástu hefur einhvern vegin tekist að bjarga nýju myndunum úr klóm flickr og sleppa þeim lausum á netið. þórdís búin að vera á íslandi í viku í tilefni 95 ára afmæli ömmu sinnar og við krakkarnir reynt að hafa það sem best á meðan, bökuðum köku í kvöld og nú eru þau að fara nýböðuð undir sæng og við ætlum að halda áfram að lesa hið geysispennandi steinaldarævintýri "bjarnarkló." það voraði skyndilega fyrir sirka tveimur vikum og var ákveðið að rýja kára af því tilefni eins og gömul íslensk lög gera ráð fyrir. það hafði þó þær afleiðingar að drengurinn roðnaði full harkalega á enninu svo ég tölti með ormana mína í mallið og þau fengu að velja sér derhúfur. smá forsaga að hjólamyndinni: þegar við fengum þessa íbúð síðasta haust var þessi gullfallegi fákur, eða öllu heldur meri, það fyrsta sem ég veitti athygli. það hefur staðið ónotað á veröndinni hjá okkur í vetur en við þórdís töldum víst að leigusalinn okkar ætti það og mundi endurheimta í sumar, ég hef því bitið á jaxlinn og stillt mig um að falast eftir því í allan vetur. þegar ég kom heim um daginn var mike (sem býr á neðri hæðinni og semur músík sem ég finn skyndilega engin lýsingarorð yfir) að klóra sér í hausnum yfir því hvernig hann gæti losað sig við þetta skran svo ég bauð honum að taka það í fóstur. og þar sem anna sóley gerði þau taktísku mistök um daginn að hefja grjótkast úr glerhúsi með því að setja mynd af nýja sænska keppnishjólinu hans dosta á netið þá má ég til með að svara í sömu mynt. ligga ligga lái. svart/hvítu myndirnar eru úr ferðalaginu okkar í fyrra, það hefur reynst tímafrekara en ég hélt að prenta þær en ætti rétt að hafast áður en við flytjum heim. en bjarnarkló stendur í stórræðum að safna birgðum fyrir veturinn...

4 Comments:

Blogger Anna Sóley segir...

fallegar myndirnar af krökkunum...

fallegt hjól... (ætla ekki að gera upp á milli þeirra)

vantar bara stóra fallega brú milli Toronto og Runsa svo þið félagarnir getið hjólað á milli, og vinkað niður til Herningbúa...

as

8:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

er á leið út á flugvöll. Hlakka til að sjá ykkur.
mamma/Þórdís

1:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Mikið eruð þið sæt og fín með derhúfur og allt! Þórdís kemur með fangið fullt af kossum og knusum frá mér.
Saknaðarkveðjur, amma á Bjargó

4:35 e.h.  
Blogger Halla segir...

falleg meri sem þú hefur nælt þér í. Ég efa það ekki að þú myndir einnig ná toppsæti í hjólreiðakeppni með dosta ;o) Ég er enn á meðal helstu aðdáanda þinna Orri, frábærar myndir.
Halla

5:02 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home