Regn í maí
Það hefur rignt nánast síðan ég kom aftur til Toronto. Við familían áttum einn dag saman áður en Orri stakk af til Íslands til að spila á tónleikum og lóðsa um landið fræga útlendinga. Undanfarna þrjá daga hefði ég alveg verið til í að vera á tónleikum í Reykjavík en sem sárabót fyrir að vera ekki í Fríkirkjunni á þriðjudaginn fór ég á uppákomu sem að vinkona mín úr skólanum skipulagði ásamt öðrum kraftmiklum konum. Þetta var blanda af dansi, ljóðaupplestri og tónleikum, auk þess sem hægt var að kaupa lottómiða og vinna ýmsa nytjahluti eins og tauservíettur með ljóðum á, útsaumaða dúka, skrímsli, ljóðabækur og annað heimagert dót. Þær eru að safna aur til að geta lokið við uppsetningu á dansverki sem er í smíðum. Þetta kvöld var ákkúrat eins og ég hafði ímyndað mér að ég myndi vera á vikulega samhliða mastersnáminu. En eins og ég hef áður sagt þá hefur lítið farið fyrir “menningarlegu mér” sem sit með rauðvínsglas og horfi á dansspuna eða með ljóðabók á kaffihúsi. Ég á náttbuxum og lopapeysu við tölvuna er ekki alveg eins rómó, og þó..
Í öllu falli var þetta skemmtilegt kvöld. Ég fyllist alltaf krafti þegar ég fatta hvað margir eru að gera skemmtilega og spennandi hluti í kringum mig. Þarna var ein stelpa með kassagítar sem heillaði mig sérstaklega (ekki sakaði að hún heitir Harmony) og önnur sem las upp svo skemmtileg ljóð um brösuleg ástarmál eldri systur sinnar og rósóttan sundbol ömmu sinnar.
Lokaáfanginn minn er hafinn og heitir “Drama and Poetry of Slavery”. Þessa viku lásum við tvö leikrit eftir Euripides (The Trojan Women og Hecuba) og umræðurnar í dag lofa góðu um framhaldið. Kennarinn heitir Nyquist og er af sænskum ættum. Hún leggur áherslu á pólitík og feminisma sem er mér að skapi.
Kári hefur slökkt á graðfola rapptónlistinni og hættur í leiknum sem hljómaði greinilega sem útileikur en ég nennti ekki að stoppa. Nú vill hann fá mig út í fótbolta. Eyja er á skátafundi eða öllu heldur á “Girl Guide’s meeting” þar sem þær eru að skipuleggja útilegu um miðjan júní og alveg að springa úr spenningi. Held að við Kári sleppum júróvisjón glápi í gegnum rúv og horfum á Grizzly Man. Það er of mikil rigning til að spila fótbolta.
Heyrumst,
Þ.
Í öllu falli var þetta skemmtilegt kvöld. Ég fyllist alltaf krafti þegar ég fatta hvað margir eru að gera skemmtilega og spennandi hluti í kringum mig. Þarna var ein stelpa með kassagítar sem heillaði mig sérstaklega (ekki sakaði að hún heitir Harmony) og önnur sem las upp svo skemmtileg ljóð um brösuleg ástarmál eldri systur sinnar og rósóttan sundbol ömmu sinnar.
Lokaáfanginn minn er hafinn og heitir “Drama and Poetry of Slavery”. Þessa viku lásum við tvö leikrit eftir Euripides (The Trojan Women og Hecuba) og umræðurnar í dag lofa góðu um framhaldið. Kennarinn heitir Nyquist og er af sænskum ættum. Hún leggur áherslu á pólitík og feminisma sem er mér að skapi.
Kári hefur slökkt á graðfola rapptónlistinni og hættur í leiknum sem hljómaði greinilega sem útileikur en ég nennti ekki að stoppa. Nú vill hann fá mig út í fótbolta. Eyja er á skátafundi eða öllu heldur á “Girl Guide’s meeting” þar sem þær eru að skipuleggja útilegu um miðjan júní og alveg að springa úr spenningi. Held að við Kári sleppum júróvisjón glápi í gegnum rúv og horfum á Grizzly Man. Það er of mikil rigning til að spila fótbolta.
Heyrumst,
Þ.

16 Comments:
hæ,
það er gaman að heyra hvað þú ert að lesa í skólanum, haltu áfram að segja frá kúrsunum. bæðevei hvernig er kynjaskiptingin í nemendahópnum í þessum feminismalituðum námskeiðum?
as
Frábært að heyra frá þér. Ég get glatt þig með því að það er líka búið að vera rigning hér í danaveldi í vikur og það lítur ekkert út fyrir að hún sé að hætta.
Gangi þér vel á námskeiðinu, vona að það verði skemmtilegt.
knús og kram
Halla
Bestust, gott að heyra frá þér og gaman að lesa um menningarlegu þig. Þú hefðir sko fílað tónleikana í fríkirkjunni - algert ævintýri, sjaldan farið á jafn nýstárlega og skemmtilega tónleika. Þessi hörpustelpa er alger galdrakerling og slow blow voru meiriháttar.
Knús og kossar í massavís til ykkar, saknaðarkveðjur - mamsa
í flestum tímum sem ég hef verið í hingað til hafa verið aðeins fleiri konur, (60/40) nema í popular American lyric þar sem skiptingin var alveg 50/50 en í þessum sumarkúrsi er bara 4 strákar á móti 20 stelpum, sem er bæðevei líka óvenju stór hópur því hámark í umræðutímum (seminars) eru sextán nemendur.
Já tölfræðin.
þ
Ég eyddi öðru af mínum dýrmætu kvöldum meðal einhverra artí-fartí, anti eurovision, "ég var þar", MR-týpa. Ég hélt í alvöru að ég væri kominn á miðnætursýningu á Rocky Horror. Horfði á tregafullan trúbador geifla sig og stynja upp sömu laglínu aftur og aftur. Og hann ætlaði aldrei að hætta og loks Björk wannabe sem spilaði ágætlega greyið en hefði aldrei átt að verða útflutningsvara. Allt til að hitta Orra, en allt fyrir lítið. Orri þú skuldar mér einn feitann. Ég hafði svona álíka gaman af þessu og þú að horfa á formulu 1, eurovision og tour de france á sama degi. Ef Ásta hefði ekki verið þarna til að bjarga kvöldinu þá væri ég ekki til frásagnar. Sjáumst aftur...
Voru Orri og kó líka svona tilgerðalegir?
heyrðu dosti, á hvaða tónleikum varstu? fórstu aftur til vina þinna í frímúrara reglunni? ég bauð þér að koma í FRÍKIRKJUNA, hún er í miðbænum sjáðu til. en gagnvart manni sem eltir coldplay og the darkness er af allt of mörgum spælingum að taka til að ég geti valið á milli þeirra...
p.s. hvað kostar annars kvöldið með þér í reykjavík?
Noh!
Og opnaðist ekki ormagryfjan!?
Ég held að maður noti svona uppstigningadag til að standa upp með hvítan fána og biðja um frið. En ef þið þekkjið mig þá vitið þið auðvitað að ég var að grínast...(ýkja). En ég nefndi ekki Slowblow viljandi því það hefði eyðilagt allt að þurfa að dásama þá. Þetta var það besta sem ég hef heyrt í þeim á tónleikum. Ég er heldur ekkert fúll út í Orra bara svekktur að hitta hann ekki. Það var mjög sætt hvernig Ásta kom honum til varnar "En þetta er vinnan hans" Og Anna Sóley búin að vera miður sín yfir þessum skrifum líka. En það sem kom út úr þessu er að drekinn sýndi sig og gott er að vita af honum.
Ah og Þórdís, nei strákarnir voru ekki artí fartí, bara heimilislegir. En MR-ingarnir voru allir með vottorð frá stílista í nördaklæðnaði.
Við Orri vorum einmitt að tala um að það var ágætt að hvorki Raggi né Nonni bróðir skyldu mæta á þessa tónleika því þeir hefðu vafalaust þurft ælupoka. Ég er reyndar mjög hrifin af öllum þessum böndum en alveg sama hvað er sagt um þau öll nema Slowblow :) Það er bannað að tala illa um þá í mín eyru, sérstaklega af elskulegum vinum mínum (þeir verða bara að hvíslast á). Þ.
Vá, fjörið er greinilega hér. Það hefði verið gaman að vita í hvorum hópnum ég tilheyrði. Sitjandi á bekknum með ælupoka með nonna og ragga eða í sæluvímu með Dosta ;o) hehe... Þetta er bara eins og að fylgjast með kosningarbaráttunni á fróni ;o/
Halla hrekkjusvín
Það kann greinilega góðri lukku að stýra fyrir útlæga Íslendinga að blása úr prófafrústrasjónlúðrunum af og til - sjáið bara hvað það hefur gert fyrir commentin!
Ég var að svekkja mig á því að hafa tekið Júró fram yfir Slowblow en sé að ég hef fengið það besta úr báðum heimum með því að fylgjast bara hér með í staðinn.
já dosti, það er frábær hugmynd að nota svona kristna hátíðisdaga til einhvers uppbyggilegs. aldrei hefur mér dottið í hug að gera neitt af viti á þessum dögum. en leiðinlegast þykir mér að þú skulir hafa farið á mis við smog og joanna, það er ógurlega sorglegt. hvað er konunglega heimilisfangið ykkar þarna í svíþjóð? ég skal brenna fyrir þig nokkra slagara sem sándtrakk við arineldinn...
Hitti mömmu þína á frábærum útitónleikum í kjölfar göngu Íslandsvina niður Laugaveginn. Ótrúlega gaman, bað fyrir kveðju til þín en svo mundi ég í þeim töluðu orðum eftir þessari frábæru bloggsíðu og ákvað að skila kveðjunni beint hingað. ég get svarið það að fjöldinn var helmingi meiri en í kröfugöngu kennara um árið. Svo var ég svo sæl að hafa sent sms til allra í símanum mínum og hitta heila 10 af þeim, segið svo ekki að tæknin sé sniðug.
Hafið það gott í útlandinu.
Skrifa ummæli
<< Home