ferskir vindar
Flutti lokafyrirlesturinn í gær og það er rosalega góð tilfinning að vera búin með það. Gekk bara vel held ég og sköpuðust fjörugar umræður. Í gærkvöldi fór ég svo út að borða í gríska hverfinu með vinum og það var mjög ljúft og skemmtilegt að sitja úti í hitanum með miljón ólíka gríska rétti fyrir framan sig og kalt hvítvín. Í nótt kólnaði og, ótrúlegt en satt, það blés vindur í gegnum risíbúðina sem hreinsaði burt gufubaðsmolluna. Þvílíkur munur! Þannig að ég er glöð og kát og til í lokaslaginn, þ.e. lokartigerðina. Í dag eru ákkúrat tvær vikur þar til ég kem heim og sá tími á vafalaust eftir að líða hratt.
Bless í bili,
þ.
Bless í bili,
þ.

4 Comments:
Til hamingu með hvað fyrirlesturinn gékk vel - tvær vikur líða fljótt og við fáum að sjá þig bestust og blíðust. Saknaðarkveðjur, mamsa
innilega til hamingju þórdís, vildi að við líka værum að fara að hittast eftir 2 vikur...
Já en ég verð með ykkur í huganum í New York!
Til lukku með fyrirlesturinn elsku þórdís. Vildi líka að ég væri að hitta þig eftir 2 vikur. Hitti Áróru frænku þína með foreldrum á laugarveginum í dag, en dagurinn í dag er ótrúlega merkilegur sökum þess að þetta var fyrsti sólardagurinn síðan ég kom á landið. Ég hélt upp á daginn með að ráfa um laugarveginn og fara á kaffitár og fá mér koffínlausan jökul...mmm... hahaha
knús og kram Halla
Skrifa ummæli
<< Home