Canada Day, fótbolti, þvottabirnir og hitamolla
Sit við tölvuna í íbúð Alexar og hlusta á flugelda. Í dag er þjóðhátíðardagur Kanada og flugeldasýning við höfnina. Í gær flutti ég úr íbúðinni okkar og er eiginlega strax farin að sakna hennar og hverfisins. Við bjuggum í Litlu Ítalíu og það var svo rosa mikil stemning í kringum heimsmeistarakeppnina að hverfið sem er venjulega líflegt var hreinlega að springa af orku og testestoróni. Á öllum kaffihúsum og börum er búið að setja upp stóra sjónvarpsskjái og fólk klætt í fánaliti Ítalíu, Portúgal og Brasilíu er á hverju strái, enda Litla Portúgal við hlið Ítalíu.
Það eru þvottabirnir á svölunum hjá mér og ég er alltaf að gjóa augunum að svaladyrunum, viðbúin að sjá þá búna að opna flugnanetið og hjúfra um sig á eldhúsgólfinu. Það er bara of heitt til að ég geti lokað.
Best að setja viftuna í gang og reyna að sofna.
Það eru þvottabirnir á svölunum hjá mér og ég er alltaf að gjóa augunum að svaladyrunum, viðbúin að sjá þá búna að opna flugnanetið og hjúfra um sig á eldhúsgólfinu. Það er bara of heitt til að ég geti lokað.
Best að setja viftuna í gang og reyna að sofna.

3 Comments:
Frábært, nú á þér eftir að leiðast svo mikið að það verður blogg á hverjum degi!!! Vei!
Nei, ekki láta þér leiðast, en mikið er gott að sjá nýtt blogg svona oft!!
Áróra fór á róló með Kára og Ásdísi ömmu í dag. Við fórum á Drafnarborg þar sem Áróra byrjar í haust, tókum út rennibrautina sem fékk góða einkunn.
Hlökkum til að sjá þig fyrr en varir!!
Hildur og familía
VAR NÚNA FYRST AÐ SJÁ PÓSTINN ÞINN, HUGSA FALLEGA TIL ÞÍN.
NÚNA ERTU TRULEGA AÐ SETJA ÞIG Í STELLINGAR FYRIR FYRIRLESTURINN Í DAG OG VEIT ÉG AÐ ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ SLÁ Í GEGN EINS OG VIÐ ER AÐ BÞUAST FLOTTASTA STELPAN MÍN Í ÖLLUM HEIMINUM.
KNUS, KOSSASR OG BESTU ÓSKIR UM AÐ ÞÚ HAFIR ÞAÐ GOTT OG LEYFIR ÞÉR AÐ NJÓTA VEÐURBLÍÐU OG FRESLIS.´ÞÓN MAMSA
hugsa mikið til þín í einverunni þinni, og eiginlega erfitt að ímynda sér þig svona eina svona lengi...
það var hundfúlt að geta ekki hitt þig á fróninu í annars frábærri Íslandsferð.
gangi þér ROSA vel í skólanum mín kæra :)
as
Skrifa ummæli
<< Home