samstilltur blóðþorsti...
sit og sötra ódýrt rauðvín á milli þess sem ég maula súkkulaði eins og anna í ævintýrabókunum. steikti þó ekkert flesk eins og henni einni var lagið í skosku útilegunum heldur henti í kássu með nauti frá "the friendly butcher." veit ekki hvað kom yfir þórdísi í dag en hún var heltekin skyndilegum og óbeislaðum blóðþorsta þegar hún kom heim af bókasafninu. ég játa það hérmeð að mér stóð ekki alveg á sama þegar ég sá dýrslegan glampann í augum hennar yfir hráu kjötinu áður en ég kynti undir pottinum. gleymdi alveg að spyrja hana hvað hún hafði verið að lesa. gott að taka svona virkan þátt í fæðukeðjunni öðru hverju, manni líður eins og maður hafi virkilega laggt eitthvað til málanna. hef annars verið að þvælast um hverfið undanfarna eftirmiðdaga með polaroid myndavélina mína og rammað inn það sem mér finnst þess virði að taka með sér héðan. hið illa polaroid veldi hætti auðvitað að framleiða filmur fyrir myndavélina mína (eftir 35 ár!) tveimur mánuðum eftir að ég keypti hana svo nú tek ég á síðustu 7 pakkana sem ég keypti á e-bay á uppsprengdu verði um daginn. hversu týpísk sitúasjón er þetta fyrir orra? samt frekar frískandi tilfinning að vinna með eitthvað sem er í takmörkuðu magni í stað þess að vera sífellt að einhverju ófókuseruðu helvítis bruðli. en nú fæ ég ekki flúið svefninn...
orri.
orri.

2 Comments:
þú getur huggað þig við það, eftir að hafa keypt síðustu filmurnar á jarðríkinu fyrir uppsprengt verð, að vera að sötra ódýrt rauðvín, því ójá rauðvín er sko ekki ódýrt á íslandinu góða...
Góðar myndir
Stór aðdáendi
skemmtilegar myndir - get varla beðið eftir myndasýningu á haustmánuðum þegar ALLIR eru komnir heim. knús og kossar frá konunni í nýja eldhúsinu á Bjargarstígnum
Skrifa ummæli
<< Home