laugardagur, júlí 15, 2006

Amerísk della

Það er ekki um að villast að nú eru einkenni einverunnar farin að segja til sín. Ég sakna Orra og krakkana svo hrikalega að ég er alveg hætt að reyna að vera gáfuleg, menningarleg eða pólitísk. Í gærkvöldi horfði ég á tvær Amerískar rómantískar gamanmyndir hvora á fætur annarri og í dag fór ég að versla! Ég fór reyndar ekki út gagngert til að versla (eins og sumir vita þá þykir mér fátt leiðinlegara en verslunarferðir). En til að hressa mig eftir bókasafnið í morgun rölti ég á Bulldog, sem er svona eins og kráin í Cheers fyrir Norm "where everybody knows your name...damm-damm-da...and they're always glad you came dam-dam-da!" Nema hvað, ólíkt Cheers barnum er Bulldog afskaplega gay. Þar sem ég sat með kaffibollann og var að velta því fyrir mér hvað í fjáranum ég væri að gera hérna alein í Toronto gaf sig á tal við mig maður (ekki einn af fastakúnnunum) og spurði hvort ég væri búin að kíkja á brjálæðislegu stórútsöluna á næsta horni "Darling, with these prices you just can't go wrong!" sagði hann og ég dreif mig af stað. Þetta var einhver merkjavara og hommarnir voru hreinlega að tapa sér yfir gæðunum og verðinu. Fólk háttaði sig alveg til að máta fyrir framan einn pínulítinn spegil og ég hélt án spaugs að einn drengurinn ætlaði bara að líða útaf þegar hann var komin með jakkaföt og skyrtur eftir uppáhalds hönnuðinn sinn. "Ég bara verð að setjast niður! Gvuð, ég næ ekki andanum!" sagði hann og ég reyndi að verða líka spennt yfir þessu öllu saman. Keypti mér einn sumarkjól, flauelsjakka, þrjá síðerma boli, peysu, ullarvesti og gollu á 68 dollara og hef held ég aldrei keypt eins mikið af fötum á ævinni.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

mmmmm, hljómar vel, gott hjá þér!!Hverning var það, voru annars engir skór þarna......þú hefðir nú alveg getað skellt þér á einsog eitt par fyrir mig. Mig vantar sárlega nýja spariskó ;)

9:07 e.h.  
Blogger Anna Sóley segir...

æææ hvað er annars langt í að þið sameinist? er alltaf jafn heitt í toronto?

as

8:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Það voru engir flottir skór þarna Ásta, því miður. Það er eins og mig minni að við tvær höfum leitað að spariskóm á þig síðasta sumar og fundið voða flott par í Spútnik...en auðvitað má alltaf bæta skóflotann.

Tvær vikur og tveir dagar þangað til ég fer heim, ég tel. Dagarnir virðast langir núna en ég þarf líka að vera hrikalega dugleg til að ná að klára ritgerðina og allt fyrir skólann þannig að líklega veitir ekki af tímanum. Er með fyrirlestur á morgun og það verður gott þegar hann er búinn.

11:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

já það er rosa heitt hérna, 34 stig, sól og mikill raki...ekki síst heitt í risíbúðinni minni.

11:32 f.h.  
Blogger Halla segir...

Sæl pæja! það er nú aldeilis dugnaðurinn á þér. Þú hefur keypt föt fyrir árið. Ég verð nú að játa að ég er ekki alveg viss um að Ástu vanti nýja skó í safnið sitt hehe...
Ohh... mér finnst svo hræðilegt að missa af þér vinkona. Við erum búin að vera hér í vetrarveðrinu í 2 og hálfa viku og erum farin að hlakka smá til að komast "heim" það er víst þannig að það er alveg sama í hvaða landi maður býr þá er alltaf gott að komast "heim", ef þið skiljið mig ;o)
Gangi þér vel vinkona
Halla

1:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

mikið hlakka ég til að sjá þig í fínu design outfittinu - þú ert ábyggilega sætust og fínust í toronto og þó víðar væri leitað. Vonandi gékk fyrirlesturinn vel í dag - til lukku með að vera búin með síðasta fyrirlesturinn!!
Tel dagana þangað til að þú kemur - saknaðarkveðjur, mamsa

10:32 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home