Vorið er komið og grundirnar gróa..
Í dag var 13 stiga hiti, sól og blíða. Ég flutti síðasta fyrirlestur annarinnar og sat síðan fyrir svörum. Það gekk allt voða vel og það var svo góð tilfinning að labba út í sólina og vita að nú á ég "bara" eftir þrjár lokaritgerðir. Við erum farin að hlakka til að fá Ástu pástu í heimsókn um páskana. Þá fer Anna Sóley kannski að sjá þessar túristamyndir af Toronto sem hún hefur beðið eftir en við alltaf klikkað á. Vel á minnst, Orri keypti rétta snúru í myndavélina í dag þannig að þetta er allt á uppleið.
Fyrir þá sem ekki vita þá kem ég heim í vikustopp í byrjun maí til að fagna 95 ára afmæli ömmu góðu. Það verður gaman að koma og sjá aðeins framan í fólkið heima og fá nasasjón af íslenska vorinu. Setti skauta, úlpur og vetrarföt til hliðar í dag en þarf kannksi að taka úlpuna fram aftur þegar ég fer heim:) Ég ætla ekkert að læra í kvöld, heldur borða ís og horfa á vídeó. Ahh,ummm.
Þórdís

4 Comments:
úplu hvað ... Það er búið að vera sumar hér í allan vetur ;)
Hlakka til að hitta ykkur.. ásta pásta.
já, endilega nuddaðu því að okkur...(þá ásta með sumarið á fróni) við sem búum í scandinavíska rakakuldanum erum ENN í úlpum með vettlinga og trefla ;o)
Til hamingju stelpa að vera búin með fyrirlesturinn, gagni þér vel með ritgerðirnar.
kv. Halla
þetta átti að vera "gangi" ;o)
íhaaaaa! ég er nefnilega hætt að trúa því að þið séuð í Toronto...en já nú stóla ég bara á ástupástu að redda þessu máli. (ásta notar ekki úlpur heldur úplur, enda eru þær miklu betri)
Skrifa ummæli
<< Home