Hin fjögur fræknu...
Nú er kominn tími fyrir smá fréttapóst. Eins og oft áður þá hafa plön okkar breyst dálítið. Núna er stefnan að ég klári námið í sumar og að við flytjum heim í stað þess að vera ár í viðbót hér í Toronto eins og upphaflega var stefnan. Allir í fjöslkyldunni eru ánægðir með þessa niðurstöðu en við tilkynntum krökkunum þetta á afmælisdegi mínum, þann 24.jan. Það var reyndar mjög gaman að því að þegar við tilkynntum að við hefðum fréttir að færa var Eyja alveg viss um að þau væru að fara að eignast systkini, þannig að það var ekki laust við vonbrigði þegar við þvertókum fyrir það. Kári tók þessu með jafnaðargeði og var bara ánægður en Eyja tók nokkur hopp á Indverska veitingastaðnum áður en hún settist niður. Svo sagði hún, heimspekilega, að þetta væri nú dálítið undarlegt, hún væri búin að óska þess oft að við myndum flytja heim til Íslands en nú þegar hún vissi að við ætluðum heim í sumar þá færi hún strax að hugsa hvað það væri gaman hér í Kanada og hvað hún muni sakna landsins og vinanna hér mikið. Seinna um kvöldið sagði Eyja mér svo að ef hún væri foreldri myndi hún nú ekki segja krökkunum sínum frá þessu svona snemma því það væri of langur tími að hlakka til í fimm mánuði! Alltaf með allt á hreinu þessi skotta.
Orri og krakkarnir koma sem sagt heim í lok júní, þegar skóla krakkana lýkur en ég verð hér í fimm vikur í viðbót og kem í kringum Verslunarmannahelgina með mastersgráðu í vasanum. Það er dálítið skrítin tilhugsun að vera ein í svona langan tíma, en líklega fæ ég kjallaraherbergi hjá Esther vinkonu minni og eyði mestum tíma mínum á bókasafninu góða.
Ég hef ekkert sagt frá skólanum mínum þessa önn en ég er mjög ánægð með kúrsa og kennara. Það er ekki eins brjálæðislega mikið að gera núna, allavega ekki hingað til, eins og síðustu önn. Ég er ekki viss um að ég hefði þolað aðra eins törn. Einn áfanginn minn núna er um "Popular American Lyrics" og sá kúrs er að kvöldi til. Kennarinn þar er mjög skemmtilegur plötunörd á aldur við mig. Í fyrsta tíma labbaði hann inn með Fischer Price plötuspilara og kassa af gömlum vínilplötum (minnti á einhvern sem ég þekki svolítið). Náunginn er með þann allra þykksta suðurríkja hreim sem ég hef á ævinni heyrt og það er erfitt að þurrka af sér brosið þegar hann talar í þessum seigfljótandi tóni. Ég hef verið svo á kafi í bókum og þeóríum sem ég skil mislítið í að það er léttir að ganga um með vasadiskó og vera 'að læra'. Byrjuðum á Fire side Poets og endum í rappi þannig að þetta er heilmikil breidd í textagerð...eða ekki, kannski er einmitt að koma í ljós að munurinn er ekki svo mikill.
Hinir tveir áfangarnir mínir eru í 20.aldar Bandarískum leikritum og svo áfangi sem heitir "Mulatto" og tekur fyrir birtingarmyndir 'múlatta' í bókmenntum frá 18.-20.öld, sérstaklega í Breskum verkum. Kennarinn þar er spennandi, ung kona sem hefur unnið með Judith Butler og heitir Sara Salih. Gaman, gaman.
(p.s. nennir einhver að fletta upp fyrir mig íslensku orði fyrir mixed-race/biracial/half-breed/creole ... er það ekki rétt hjá mér að enn sé orðið múlatti notað í íslensku fyrir einstakling með eitt hvítt og eitt svart foreldri??)
Af öðrum fjölskyldumeðlimum er það helst að frétta að Eyja er gengin í Skátanna með Louisa vinkonu sinni og finnst það mikið fjör. Kári heldur sínu striki í boltanum (eins og systirin)og var auk þess í dag að ljúka við mikla brúarsmíð í skólanum. Það er margt spennandi í gangi í Dewson skóla og mér finnst gaman að fylgjast með hvað það er boðið upp á mikla tilbreytingu í náminu. Í síðustu viku voru Indjánar frá einhverjum ættbálki að kenna Kára bekk um trúarbrögð sín og sögur en rithöfundur heimsótti Eyju bekk og sagði frá starfi sínu, hugmyndavinnu og útgáfu og hjálpaði krökkunum að vinna sögur sem þau eru núna að setja upp í flottar myndabækur. Eftir jól var skíðaferðalag hjá Eyju bekk, Kára bekkur hefur farið tvisvar í vettvangsferðir og svona mætti lengi telja.
Orri er kátur, á kafi í Howard Zinn, Arundhati Roy og Noam Chomsky. Hann hefur verið að prenta ljósmyndir úr ferðinni okkar undafnarið og eitthvað að athuga með hugsanlegar útgáfur, auk þess að vera að semja músík, leita að auka vinnu hér og að sjá um að elda ofan í okkur.
Held þetta sé orðið gott í bili.
Þórdís

10 Comments:
vá hvað þetta nám hljómar spennandi hjá þér!... ég ræni þér kannski í nokkrar vikur yfir kaffibolla þegar þú kemur heim til að heyra meira.... neeei, ætli það..
en flott að heyra að öllum líði vel, kveðjur-Björg
veeeiiii blogg!!
Knúsaðu allt liðið frá okkur.
Veit ekki hvort múlatti sé nógu pc nú til dags, maður heyrir oftar að einhver sé "af blönduðu kyni" en það gengur náttúrulega líka yfir þá sem eru af öðru þjóðarbergi brotnir.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Kveðja
Hildur og co
FRÁÁÁBÆÆÆRRRRRT að heyra frá þér þórdís. Þessir kúrsar sem þú ert í hljóma spennandi, langt síðan ég hef séð fisher-prise plötuspilara en ég man enn eftir að hafa hlustað mikið á þá sem barn ;o) Gott að heyra að krakkarnir eru ánægðir með skólann og að eiginmaðurinn eldi e-ð gott fyrir ykkur heheheh....
kv. Halla
Við hlökkum ekkert smá til að fá ykkur aftur heim - erum m.a.s. búnir að skipuleggja sumarfríinu þannig að við fáum að vera sem mest með ykkur ;-)
Krakkarnir fannst þetta besta fréttir sem þau hafa fengið í ár, fannst það bara kominn tími til að Eyja óg Kári fóru að skila sér heim aftur...
Njótið tímin sem eftir er
Knúúúús og koss frá Hafnarfjarðarliðinu :-)
Björg, við skulum endilega drekka saman kaffi. Hlakka líka til að heyra frá þínu námi. Bæðevei, við horfðum á vídeoupptökur frá innipúkanum og donna mess kom rosa vel út, þú verður að fá að kíkja á það við tækifæri.
Elena, hér er mikið talað um Yrsu og Viktor og þau eru hluti af flestum leikjum heyrist mér. Ég vona að Raggi hafi skilað almennilegum þökkum fyrir teppin dásamlegu en þau eru í stöðugri notkun.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll og mikið verð ég glöð þegar fólk fer að droppa við í kaffi og mat, hér þarf maður að bjóða fólki formlega og það á ekki eins vel við mig.
smaks
Þ.
Hæ hó,
í þessu flóði af góðum fréttum get ég samt ekki annað en verið smá eigingjörn og bölvað því að missa af þér í sumar. Það HLÝTUR að vera hægt að skipuleggja þetta betur!
AS
Hæ Þórdís
Kynblendingur er orðið... mig grunar þó að það sér ekki talið mjög pólítískt kórrétt um þessar mundir. Skemmtilegt að lesa fréttir af ykkur - ég bý í Stokkhólmi og var í dag að grafa upp Dosta og Önnu Sóleyju, þau koma í mat á laugardag.
Bestu kveðjur,
Ragga Eiríks
Hæ hæ María hér úr gamla skólanum : ) Réttó! Hrönn sagði mér þetta í morgun að þið væruð að koma heim. Það væri nú gaman að kíkja þá á kaffíhús. Er búin að grafa upp ægilega góðan kaffidrykk á Kaffitári með karamellusveiflu. Dreymi hann á nóttinni svo góður er hann. Gaman hvað allt gengur vel annars er ekki við öðru að búast af svona jákvæðum nemanda eins og þér. Kveðja María
það er greinilega ótrúlegasta fólk sem villist inná bloggið. Gaman að heyra í Röggu, við höfðum ekki hugmynd að þú byggir í Svíþjóð. Fáum vonandi að heyra meira af því seinna.
María, að sjálfsögðu hittumst við í kaffi í sumar. Ekki spurning. Ef þú fréttir af enskukennarastöðu, helst á menntaskólastigi, þá veistu af mér. Langar dálítið að prófa að kenna á því stigi þó ég haldi jafnvel að elsku unglingarnir séu lang skemmtilegastir (allavega þessir í Réttó). Sendu mér nú skólaslúður á email og kysstu alla á kaffistofunni.
Þ.
já og takk Ragga fyrir orðið, var með það í huga líka sem skárra en múlatti en samt svo óljóst þar sem það getur vísað til ýmissa blendinga...
Kíkti líka á bloggið. Til lukku með dótturina! (betra seint en aldrei...)
Skrifa ummæli
<< Home