betra seint en aldrei...
jæja, kæru félagar. sumir hafa gerst svo kræfir að kvarta yfir óþef á vefsíðunni okkar svo ég ætla að henda inn nokkrum mölkúlum til að slá á fnykinn. í fréttum er það helst að voldugasta hryðjuverkaríki veraldarsögunar ákvað loksins að fjarlægja síðustu leifarnar af úreltu morðtólunum sínum af reykjanesskaganum! held það verði að teljast til helstu gleðigjafa í annars yfirþyrmandi skammdegi íslenskra stjórnmála undanfarin misseri. ættum þó að hafa það hugfast að ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið, eins og grátlega aumkunaverðar yfirlýsingar okkar svokölluðu ráðamanna bera vitni um síðustu daga. meira þunglyndið þessi net-moggi. ekki líst mér t.d. á þetta konsept að "nútímavæða varnir íslands," veit ekki hvað það þýðir en mig er farið að klæja í rassgatið. sem minnir mig á það að geir hinn harði finnst mér langflottastur af kallaklíkunni, alltaf skemmtilegt þegar elítan missir útúr sér blautu draumana sína. þetta væri auðvitað bráðfyndinn farsi að fylgjast með ef maður gæti leitt þá staðreynd hjá sér að þetta er fólkið sem rekur sjoppuna. hvaða þroskaheftu masókistar kusu annars yfir sig þetta hyski? mér þætti gaman að hitta sossum einn, þekkið þið einhvern? nú gengur náttúrulega ekki annað en klára þetta hálfnaða verk og fara með gott strokleður á varnarsamninginn, storma svo til brussel og fýra uppí nato dílnum. eru þessir glæpamenn annars ekki í brussel? ingibjörg sólrún og hægri krata flokksbræður hennar tækju það reyndar aldrei í mál enda endurnýja þeir jeppaflotann sinn reglulega með blóðristum ávísunum fyrir nefndastörf sín hjá nato, því musteri alheimsfriðar. ég gerði þau mistök um daginn að renna yfir stefnuyfirlýsingu samfylkingarinnar og hef sjaldan sofið jafn illa á eftir, mæli ekki með því fyrir viðkvæmar sálir. textinn sjálfur er reyndar verðugt rannsóknarefni fyrir málvísindafólk því ég hef aldrei séð íslenskt ritmál jafn gerilsneitt allri merkingu fyrr. öðru hverju - sennilega fyrir slysni - leynast hins vegar nokkrar vísbendingar um þankagang þessarar höfuðlausu hirðar, t.d. sú kenning að lýðræði á íslandi sé einna best varðveitt með frjálsum viðskiptum! það mætti halda að karl rove kallinn hefði komist í tölvuna hjá þeim, þetta rímar frekar óþægilega við þeoríur nýlenduherrana í hvíta húsinu þegar þeir halda því blákalt fram að friður verði best varðveittur með blóðsúthellingum. mér sýnist ekki líklegt að ýldulyktin minnki mikið við þessi skrif. gengur bara betur næst, vonum við... en nú verð ég satt best að segja að reyna að hreinsa þennan óþverra úr hausnum á mér fyrir svefninn svo ég ætla að laumast upp og stelast til að smella kossum á krakkana mína. myndir og meira bráðum... félagi orri.

6 Comments:
Vá!!! Það er nú aldeilis fýlan í þér kallinn. Ekki láta þetta safnast svona upp, bloggaðu frekar oftar :)
Halldór er jafnvel að hugsa um að segja upp varnasamninginum, svona til að líta út fyrir að hafa síðasta orðið hehe.
En þú mátt líka minnast á góðu stjórnmálamennina okkar eins og Björn Bjarna og Sif. Maður er a.m.k. rólegri á meðan þau eru við stjórn.
Sest hér niður fyrir framan tölvuna í nokkuð góðu skapi, en eftir bölbænir félaga orra held ég bara að ég leggist líka upp í rúm þrátt fyrir að kl. sé rétt að verða 14.00. Björn bjarna, sif og halldór eru alveg ágæt saman það kemur ábyggilega e-ð uppbyggilegt og fróðlegt út úr þeirri mafíu ;o) Lengi lifi byltingin sem aldrei byrjar á íslandi.
systir Halla
ég þakka báðum lesendum þessa pistils kærlega yfir veittan stuðning. það er ómetanlegt að vera stundum minntur á "góðu" stjórnmálamennina, ég var næstum búinn að gleyma þeim. já, manni fer fljótt að hlýna um hjartaræturnar þegar maður leiðir hugann að öðlingspiltum eins og honum birni bjarna. svo ég minnist nú ekki á raunverulegu karlana í ráðherrastólunum, þá valgerði og þorgerði. en hvar er tilgerður?
áfram Orri !! meira svona.
formaður húsfélagsins 201 Kópavogur
heyrðu ásta, ég sagði þér aldrei frá því en ég átti alltof langt samtal við dwayne um daginn. hann hringdi sjáðu til. það eru náttúrulega fréttir í sjálfu sér en snertir þig beint að því leiti að stór hluti samtalsins snérist um ranghugmyndir hans um hvar þú stæðir í pólitík. mitt í ritúalíska spurningaflóðinu hans um hvað vinir okkar og kunningjar væru nú að gera við líf sitt - sem er eingöngu illa dulbúin kjaftasöguveiðiferð - þá varð dwayne nefnilega á að halda því fram að þú ásta mín værir corporate þenkjandi aðilinn í vinahópnum. nýfrjálshuggjugúrúið sem tilbiður við altari auðhyggjunnar. en örvæntu ei, kæra vinkona, því seinni hluta samtalsins varði ég nefnilega í það að leiðrétta þennan hvimleiða misskilning - þó e.t.v. ekki algjörlega forsendulausann með tilliti til myrkrar fortíðar þinnar sem launþegi einokunarauðhringsins icelandair - og sannfæra hann um að þú værir í raun laumubyltingarsinninn í hópnum, skápakommi as opposed to sófakommi, í bestu merkingu þess orðs. held hann geri þessi mistök ekki aftur, þ.e.a.s. ef ég á eftir að heyra í honum aftur. var ég annars búinn að segja þér að hann bað kærlega að heilsa?
hei Orri, þú smellir einum blautum á Dwayne frá mér næst þegar þú verður í NYC. Ekki í fyrsta skipti sem ég er misskilin á þeim bænum :)
skápakomminn.
Skrifa ummæli
<< Home