vorhret...
vorið kom hér víst í gær. það hefði reyndar farið framhjá okkur ef ekki hefði verið fyrir glaðlega tilkynningu frá sporvagnsstjóranum á leið okkar þórdísar frá bulldog en hann leit á það sem borgaralega skyldu sína að færa torontobúum þessi tíðindi áður en þeir yfirgáfu vagninn. hjartavermandi fordæmi um samfélagslega ábyrgð sem ég fyllist lotningu yfir. já, bara ef svona fólk hefði pólitíska stýripinnann í höndunum, þá væri gaman að lifa. eyja og kári voru í fríi úr skólanum í síðustu viku og notuðum við tímann til ýmissa skapandi starfa eins og að teikna og klippa út persónur og önnur furðudýr fyrir hreyfimynd sem við ætlum að gera með gömlu super-8 vélinni minni. krakkarnir sömdu sögu sem ég ætla að halda leyndri framá frumsýningardag og svo höfum við hjálpast að við tæknilegar útfærslur á bakgrunnum og hreyfigetu söguhetjanna. ég ætlaði þó að stelast til að setja eina ljósmynd sem eyja tók af atriði úr myndinni til að byggja upp spenning en ég finn ekki snúruna úr digital vélinni svo það bíður þess að þórdís komi heim úr skólanum. þangað til...

8 Comments:
Vá, hlakka til að sjá þessa mynd. Er ekki í vafa um að hún verði skemmtileg.
Knús og kram frá Höllu til ykkar allra.
Und...wir warten und wir warten...
er vartan aftur farin að pirra þig dosti? varstu ekki búinn að láta líta á þetta?
Bíðum spennt! Óþolandi svona snúrur, hvað þær geta týnst lengi!
Hvenær er annars frumsýningardagur? Í kananda eða á klakanum?
Biðjum að heilsa öllum!
Kveðja úr Garðastræti
Orri ég var að frétta að við verðum á Íslandi á sama degi í maí. Eigum við ekki að hittast og bera saman vörturnar okkar? Ég er viss um að mín vinnur.
forsýning í toronto, second run í reykjavík. en heyrðu dosti, hvenær verðurðu á íslandi og hvað verðurðu eiginlega að bardúsa? mætirðu í fríkirkjuna? safnaðartónleikar 16. og 18. maí, slowblow og strengjabrúður... annars keypti ég snúru í myndavélina í gær en ekki þá réttu...
Já ég kem 17 og fer 19, er að verja lokaverkefnið mitt þann 18. Ég frétti af Fríkirkjunni núna um helgina svo ég er að pússla saman prógrammi þessar klukkustundir sem ég verð heima. En Fríkirkjan er ofalega á blaði.
abrakadabra...kominn með miða :)
Skrifa ummæli
<< Home