þriðjudagur, desember 20, 2005

Gleði, gleði

Jæja, nú er sko kátt í bæ. Ég skilaði síðustu lokaritgerðinni af mér seinnipart föstudags og það var hrikalega góð tilfinning. Þar með hófst afmælisundirbúningur því á laugardag héldum við upp á afmæli Kára og buðum öllum strákunum í bekknum í pizzu og kökur. Það var að sjálfsögðu mikið fjör og Kári segir okkur að frægðarsögur af íslenskum rice crispies kökum fljúgi um Dewson PS. Á laugardagskvöldinu vorum við svo með matarboð og glögg fyrir þrjá vini mína úr skólanum. Það var mjög ljúft en okkur Orra þótti þau léleg í glögginu og vorum sammála um að íslendingar hefðu ekki farið heim fyrr en potturinn væri orðinn tómur. Gestunum til afsökunar þá átti einn að fara í flug eldsnemma daginn eftir og ein átti eftir að skila tveimur ritgerðum... en eins og ég segi fólk hefur nú ekki látið svoleiðis smámuni stoppa sig í að drekka vel af glöggi. Á sunnudaginn var síðan afmæli Eyju fyrir stelpurnar úr hennar bekk og það var ekki minna fjör en hjá strákunum. Ég hafði búist við meiri rólegheitum en feluleikur, stoppdans og blöðrukast kosta þónokkra skræki. Þegar Eyja greyið var að kveðja síðasta gestinn sinn, hrasaði hún í stiganum og tábraut sig. Sem betur fer var það ekki mikil sorg og í dag haltraði hún í skólann. Seinnipartinn stendur til að sjá Narnia í bíó en á morgun kemur Sifa til okkar og það er að sjálfsögðu mikil tilhlökkun að fá ömmu. Mér skilst meira að segja að hún komi með hreindýrakjöt og Nóa Síríus konfekt þannig þá ætti okkur að vera óhætt að halda jól. Nú ætlum við skötuhjú að kíkja niður í bæ og fá okkur kaffisopa á Bulldog. Það er svo fallegt og jólalegt úti, snjór yfir öllu.

9 Comments:

Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

frábært!

8:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

hæ Kári. Við í skólanum höfum haft það mjög gott. greyið eyja að hafa tábrotnað. A'ttir þu ekki
afmæli 13 des? Maja kom aftur og
það er komin nýr strakur sem heitir
Johan , hann er einn af flótta mönnum fra Kolumbiu. allir sakna
þín
Kveðja Dagmar og allir.
Gleðileg jól.

4:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Hér er mesta gleðin yfir að fá fréttir á bloggið - alltaf jafn indislegt að heyra frá ykkur. Knús og kossar frá ömmu sem ætlar að koma um áramótin og getur ekki beðið eftir því að hitta ykkur.

8:48 e.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

Hæ Dagmar
Takk fyrir bréfið. Jú ég átti afmæli 13.des og það var mjög gaman. Ert þú með e-mail adressu? Þá get ég sent myndir frá vorhátíðinni og fleira. Ég er enn ekki búinn að senda þér eina mynd sem mér fannst flott í Slóvakíu sem var með svolitlu skrítnu á.
Kveðja, Kári

9:46 e.h.  
Blogger Anna Sóley segir...

hæ hæ,
ég byrjaði í fríi í dag og er líka komin í frí eins og þú jeiiiiiii!
Í þokkabót keyptum við hreindýrakjöt í dag og sóttum Siggu frænku út á völl, gaman gaman.
Afmæli á morgun og svo jóóóóól...
en þórdís manstu fyrir þremur árum, úff ógleymanleg bið...
man það eins og gerst hefði í gær :)

11:50 e.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

hvort ég man!
Kysstu elsku Jönu frá okkur öllum á morgun og njótið afmælisdagsins.
Saknaðarkveðjur frá fjölskyldunni í Toronto.

1:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

þessi gleði yfir próflokum er sú besta af öllum (að undanskildum meðgöngulokum) Hér er Sigrún, búin með lokapróf og fá einkunnir frá Ástralíu og er útskrifuð með B.A. sem Outdoor Educator og með "minor" í félagsfræði, Raggi kominn og búin með sín jólapróf og bara verklegt í kvikmyndafræðinni eftir áramót og Kolla að ljúka prófum og æfingakennslu í næstsíðustu önninni í Kennó og Óli að ljúka fyrstu önn í fjarnámi í meistaraskólanum. Hann þurfti líka að taka kennslufræði og var þar hæstur. Ég veit ekki hvað það er með þessa fjölskyldu og kennslu, getur einhver sagtt mér það???
Þið getið ímyndað ykkur óbærilegan léttleikann hér í Valensíunni,
Hjartans kveðjur, njótið villidýra og alls hins besta í faðmi ammanna frá Íslandi.
Úgga frænka

7:22 e.h.  
Blogger Halla segir...

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir. Takk fyrir jólakortið, vona að þið hafið haft það huggulegt um hátíðirnar.
Kv. Halla

8:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

hæ kári.
ég reyni að senda þér addrissu fljótt. Og ef ég sendi
addrissu þá verður þú
líka að senda myndir.

Kveðja dagmar

11:31 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home