föstudagur, nóvember 11, 2005

Graskerið okkar

Graskerið okkar
Originally uploaded by orrdis.

Vúúúúúhhhhhhh!!

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

Dásamlegt að sjá hvað heimilið ykkar er fallegt og notalegt og hvað þið eigið skemmtilega daga.
Knús og kossar í massaví frá ömmu á Bjargó

12:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Halló halló Hafnarfjörður!
Mikið er ég glöð að hafa fundið ykkur aftur og frábært að lesa lýsingarnar á lífinu í Toronto.
Lífið í Reykjavík gengur sinn vanagang, litla fjölskyldan á Bjargarstíg hélt upp á afmæli húsfreyjunnar í gær, og saknaði góðra granna. Jóhanni finnst ómögulegt að Kári og Eyja verði ekki í aðfangadagsmöndugrautnum í ár... Ég fer að klára vinnuna mína á Sirkus og veit þá ekki hvað tekur við.
Hvenær hentar ykkur að við komum í heimsókn?? (Við keyptum okkur reyndar miða til Ítalíu í sumar (7/6-5/7) og ætlum að leigja okkur hús og hafa það náðugt. Allir velkomnir!) en langar s.s.á. að koma og skoða ykkur. Jóhann getur ekki beðið og eins glaður og hann var við Ítalíufréttirnar þá gerði hann strax þá athugasemd að þetta mætti ALLS EKKI hafa áhrif á Toronto ferðina..!
Frábært að vera komin í samband aftur - djöfull sakna ég ykkar.
Tinna
P.s. Til hamingju með Edduna Orri minn, ég get rétt ímyndað mér hvað þér þótti slæmt að geta ekki tekið á móti henni í eigin persónu...

10:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Til hamingju með styttuna í gær, eða hvað það er sem þið fáið. Vonandi heilsast öllum vel í Kanadanu

Kveðja frá Utrecht

Snorri Guð

10:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

...en spennandi allt saman. Lína kom einmitt heim í gær svo þeldökk að við þekktum hana varla. Hún sagði okkur skemmtilegar sögur frá Ástralíu, fiji og fleira. skemmtilegust var sagan af því þegar hún fór í lítið þorp á afskekktri eyju. En hún þurfti að fara á fund með wise man í litlu tjaldi til að fá leyfi...já ferðasögur og ferðablogg eru svo skemmtileg!
Látið ykkur líða vel.
Kveðja
Björg,Krissi og Darri

9:39 e.h.  
Blogger Anna Sóley segir...

hæ hó!
Mikið er þetta fín og kósí íbúð, og frábært hvað allt gengur vel.
Oh hvað það væri gaman að koma í heimsókn einhverntímann, það mun gerast en kannski ekki í nánustu framtíð. Ætliði að upplifa Kanadísk jól?
Haustið kvaddi í gær og í dag er greinilegt að það er kominn vetur, æjá það hlaut að koma að því.
Heyrumst fljótt,
AS og co

p.s. til lukku Orri með vinninginn!

9:31 f.h.  
Blogger Dosti segir...

Til hamingju með Edduna! Nú geturðu bara farið að slappa af. Toppinum er náð!

En fín íbúðin og gott að þið eruð að spjara ykkur þarna.

kveðja,
Dosti

1:22 e.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

já þið getið ímyndað ykkur hvað við hjónin erum stolt af styttunni...
frábært að heyra í þér tinna, ég hélt bara að frægðin væri að fara með þig og þú værir búin að gleyma okkur. Ég skrifaði þér reyndar, eins og fleirum, kort fyrir svona tveimur mánuðum sem sitja enn hér í gluggkistu og safna ryki. Svona er framkvæmdagleðin mikil. annars er ég nú bara ansi dugleg í skólavinnunni og hef bara engan tíma til að vera að spjalla svona á netinu eins og iðjuleysingi. Afmæliskoss til þín Tinna - ég skrifa þér fljótlega...
bless til allra í bili, þarf að snúa mér að queer theory and african american lit. ritgerð
Þ.

4:05 e.h.  

Blogger Halla segir...

Frábært að sjá myndir af íbúðinni. hún er greinilega rúmmgóð og fín. Orri til lukku með styttuna, hún á öruglega eftir að sómas ér vel hjá arninum ;o)
Bestu kveðjur frá Höllu

11:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Jæja, fer þetta nú ekki að verða gott! Ritgerðin hlýtur að fara að verða búin og komið að okkur...!!

8:08 e.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

sorrí Tinna, en ég er ekki lengur með email addressuna þína, allavega ekki á þessari tölvu (þetta hljómar hrikalega leim afsökun..) en nennirðu að senda línu á orrdis@yahoo.com og þá svara ég strax. kossar, Þ.

3:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home