feðgar í göngu

feðgar í göngu
Originally uploaded by orrdis.
Á laugardagskvöldinu fyrir Hrekkjavöku var mikil hátíð í hverfinu og draugaganga. Þessi mynd sem ég tók sýnir ekki sérlega vel stemmninguna en þarna voru fullorðnir og börn í draugalegum búningum, flestum heimagerðum sem kom skemmtilega á óvart, trommur og læti. Þónokkrir voru á stultum og sumar risa grímur og brúður sem flutu yfir göngunni voru ótrúlega flottar. Þetta kvöld gisti Eyja hjá Louisa og þær horfðu á gönguna frá húsinu þeirra þegar hún gekk framhjá en við strákarnir tökum þátt og gengum þó við værum ekki í búningum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home