laugardagur, október 22, 2005

Haust í Toronto

Það er kominn tími til að segja frá hversdagsleika okkar hér í Toronto. Ég vakna venjulega fyrst og tek strætó í skólann. Orri og krakkarnir leggja af stað rétt fyrir níu og labba bara út götuna til að komast í Dewson. Í hádeginu fer Orri með gott nesti til krakkana og situr með þeim úti í garði á meðan að þau borða. Það er ansi notarlegt að hittast svona í hádegismat og ég reyni að koma með á miðviku eða föstudögum og borða hádegismat með þeim. Núna er farið að kólna þannig að stundum koma krakkarnir heim í hádeginu en við erum að spá í að láta þau fara að borða nestið í skólanum frá og með nóvember. Þó þetta sé indælt og Orri sé alsæll með að eyða hádeginu með krökkunum þá slítur það vinnudaginn dálítið og nú þegar krakkarnir eru búin að eignast góða vini þá finnst þeim alveg eins gott að vera með þeim í og borða nesti í leikfimissalnum. Orri er kominn með vinnuaðstöðu í Gallerí 44 þar sem hann er með ljósmynda aðstöðu en mér skilst að hann komist ekki inn fyrr en 2.nóvember. Við erum heppin með kokkinn því á hverjum degi er veisla. Orri eldar súpur og kássur og er sífellt að betrumbæta uppskriftirnar. Hér í grendinni er ódýr heilsubúð sem við notum heilmikið og það er hægt að lifa góðu lífi með tiltölulega lítinn aur. Auk þess að búa til mat höfum við verið að baka heilhveiti pönnukökur með hlynssýrópi, litlar formkökur með appelsínuberki og ýmislegt spennandi. Kökusala Eyju og Louisa um síðustu helgi gekk rosa vel. Þær seldu 84 litlar formkökur/múffur og sendu ágóðann til fátækra barna í Afríku. Um síðustu helgi leigðum við líka bíl og keyrðum út fyrir bæinn að skoða sveitina í haustlitum. Við tíndum epli (sem við ætlum einmitt ma. að nota í eplaköku og pæ) og fundum stórt og flott grasker sem við ætlum að skera út í fyrir Hrekkjavökuna. Við tíndum líka falleg laufblöð sem er verið að pressa. Það er frábært fyrir mig að taka mér pásu frá lestri og fara út þannig að ég er ánægð með hvað veðrið hefur verið gott. Var ég búin að segja frá Þakkargjörðarhátíð Kanadabúa? Hún er haldin í byrjun október en ekki í lok mánaðarins eins og í Bandaríkjunum. Okkur var boðið til Guðrúnar og Greg ásamt heilmörgum vinum þeirra. Maturinn var frábær og skemmtilegt kompaní líka. Það besta við þessa hátið er að hún er ekki trúarleg þannig að allir geta tekið þátt. Við vorum kannski sextán plús krakkar og flestir komu með eitthvað. Mér finnst svo frábær svona samskotamatur því þá er svo margt að smakka. Eyja og Kári voru líka svo glöð að vera boðið. Þau spiluðu borðtennis og matador og horfðu á Wallace and Gromit og voru hæstánægð. Af öðru sósíallífi þá fór ég í partý til Linda Hutcheon sem er kennarinn minn og það var mjög gaman. Ég er búin að kynnast nokkrum nemendum vel og finnst andinn í enskudeildinni almennt mjög fínn. En talandi um skólann þá er best að ég haldi áfram að vinna. Kaffipásan mín ætti að vera búin. Ég, Orri og Kári fórum áðan á Bulldog Cafe sem er langbesta kaffihús Toronto. Við leggjum á okkur strætóferð um helgar til að fá okkur bolla og spjalla við Stuart, Paul og Wally (voffi) sem reka staðinn. Eyja fékk að gista hjá Louisa síðustu nótt og núna eru þær á vísindanámskeiði í háskólanum mínum. Námskeiðið er annann hvern laugardag til jóla og er fyrir stelpur á Eyju aldri til að hvetja þær til að taka þátt í stærðfræði og vísindum. Ég er spennt að heyra hvernig þeim fannst því í dag var fyrsti dagurinn.
Bestu kveðjur til allra...nær og fjær, til sjávar og sveita.........
Þórdís

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

Úff hvað ég vildi að við værum þarna hjá ykkur!!
knús
Hildur& Nonni& Áróra

10:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

ég vildi líka óska að ég væri með ykkur - njótið og eigið áfram unaðsstundir - knús og kossar í massavís, (m)amma Ásdís

12:42 e.h.  
Blogger Halla segir...

Væri alveg til í að skella mér í mat til Orra, hann er ekki leiðinlegur kokkur.
kv. Halla

2:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Elsku Orri og Thordis, Eyja og Kari!

Sma lifsmark hedan fra Astraliu. Er nanar tiltekid NA, stadurinn heitir Cairns og her er alveg svakalega heitt og rakt. Atti skemmtilegan dag uti a eyju her i great barrier reef og skellti mer svo i kofun! Ja, ohaett ad segja ad thad hafi verid upplifun...og eg a lifi. Ekkert sma flottir fiskar tharna. Segi gott i bili.

Lina (anilorak@simnet.is)

11:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

http://www.drumbuddy.com/

var að vafra um netið og fann þennan grip....þetta er mjög skemmtileg græja. og ef þið hafið ekki efni á að kaupa hana er hægt að skemmta sér lengi yfir upphafslaginu!

skemmtið ykkur í Kanaadaaaaaa!
kveðja-Björg

12:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Vil ekki kvarta, veit að allir eru bissí og svona, en fer ekki að koma tími á "Vetur í Toronto" blogg?? Allavega áður en "Jól í Toronto" bloggið kemur.....
Hvernig var hallóvín?? Hvernig gekk að búa til grímubúninga án Sifu??
Knús frá Hildi,Nonna og Reyni Pétri
(Áróru)

3:22 e.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

já ég viðurkenni að við höfum verið sérlega léleg í blogginu undanfarið. Ég ætlaði að setja inn myndir núna áðan en það klikkaði. Reyni aftur þegar tölvupirringurinn er runninn af mér.
Þ.

3:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Alltaf sama pródúktívið í blogginu. En það er ljóst að Kanada er ekki slæmur staður. Kem von bráðar.

12:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Frábart ad sja nyju ibudina ykkar, thad fer greinilega vel um ykkur i utlandinu. Eg er ekki enn ordin tolvutengd heima, vinna a netkaffi, en sendi ykkur betri frettir og myndir thegar eg er med allt a hreinu.
Erum byrjud ad planleggja skothrid a gamlarskvold - vantar mikid thegar ykkur vantar. Koss fra okkur ollum her i Valencia,
Ugga

2:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home