Grasekkjugaul
Orri fór til Essen í gær þannig að ég og krakkarnir erum ein í kotinu. Hann var búinn að vera í kapphlaupi við tímann að klára að prenta ljósmyndirnar fyrir Slóvakíuverkefnið og það náðist. Hann setti upp myrkraherbergi í kompu hér í íbúðinni sem var mjög hentugt því þá gátum við bæði verið að vinna heima. Annars er aðstaðan hérna heima dálítið fyndin því við erum nánast með engin húsgögn. Við fundum einn eldhússtól úti fyrir þremur dögum og það var mikil búbót. Hér er eldhúsborð sem ég vinn við og við borðum við. Við sitjum á ferðatöskum sem venjast bara vel. Síðan er futon sófi inní í stofu sem við Orri sofum í og stofuborð sem er líka hægt að borða við þannig að þetta er í góðu lagi. Krakkarnir sofa saman á tvíbreiðri dýnu í svefnherberginu og þar sem við erum komin með kassana sem við sendum að heiman þá eru þau með slatta af dóti, legói, playmó og barbiedúkkum. Eftir að Orri fór í gær þá röðuðum við upp playmódótinu og lékum þrjár ólikar fylkingar, indjána, kóngafólk og víkinga. Í gærkvöldi horfðum við svo á Heiðu með Sherley Temple í tilefni þess að ég kláraði fyrstu ritgerðina og að var laugardagur keyptum við pizzu, kók og súkkulaði og kúrðum uppí sófa.
Um næstu helgi flytjum við í nýju íbúðina og við hlökkum mikið til. Þá fá krakkarnir sitt hvort herbergið og ég góða vinnuaðstöðu (sem skiptir miklu þar sem svo stór hluti námsins þarf að fara fram heima). Þar eru einhver húsgögn svo við sjáum til hvað við þurfum að kaupa. Þetta hverfi er svo skemmtilegt. Á morgnanna þegar maður labbar með krakkana í skólann koma fjölskyldur úr hverju húsi sem eru líka að labba með sín börn í skóla eða gæslu. Um helgar er mikið um garðsölur í hverfinu og hér er stór almenningsgarður sem er með lífrænan markað á hverjum fimmtudegi. Í garðinum er stór skautahringur sem er víst frábær á veturna. En nú þegar sumarið er enn (ca. 25 stiga hiti og sól) þá er hægt að sitja í garðinum með kaffibolla og horfa á krakkana leika sér. Hópur af trommurum var í garðinum í gær og það var hálfgerð karnival stemning.
Við höfum hitt Ragga frænda tvisvar. Það er frábært að hafa hann hér, ekki síst þar sem hann er tölvunörd og hefur sett inn alls konar sniðug prógröm í tölvuna okkar. Eyju finnst hann galdramaður þar sem hann lagaði Sims leikinn hennar sem við vorum búin að úrskurða dáinn. Um daginn fóru Raggi og Orri á Sigur Rósartónleika og það var víst mjög gaman. Ég hefði gjarnan viljað fara líka en við erum ekki búin að húkka barnapíu ennþá, auk þess sem ég þufti að vinna þetta kvöld (eins og öll önnur). Það er svo fyndið að í götunni okkar búa íslendingar! Konan sem vð leigjum þessa íbúð af sagði okkur að hún þekkt íslendinga í götunni og ætlaði alltaf að láta okkur fá númerið þeirra. Einn dag þegar Orri var að sækja krakkana þá heilsaði honum kona sem kynnti sig sem Margrét og sagðist vera að sækja barnabarn sitt hann Brynjar í skólann. Þessi kona og börnin hennar þrjú búa öll í hverfinu. Elsta dóttirin, Guðrún, er gift kanadamanni og þau eoga tvö börn. Krakkarnir tala enga íslensku enda eru þau í raun önnur kynslóð innflytjenda. Guðrún var 13 ára og systkinin yngri þegar fjölskyldan flutti til Kanada. Á föstudaginn hitti ég mann Guðrúnar sem bauð mér og krökkunum kaffi eftir skóla og það var gaman að spjalla við þau. Krakkarnir spiluðu körfubolta við Brynjar og ég fékk heilmikið af nytsamlegum upplýsingum, m.a. um barnapíur, íshokkí og körfuboltaæfingar.
Læt þetta duga í bili. Það að blogga er náttúrulega bara afsökun fyrir því að vera ekki að lesa: “The Integrity of Memory: Creating a New Literary History of the United States” Ég var búin að nota afsökunina: það þarf að þrífa hérna og afsökunina: ég þarf að hjálpa krökkunum að sortera almennilega dótið sitt. Sveimérþá, ég held ég neyðist til að...........

5 Comments:
Hæ!
Ég myndi líka fara að taka til með þennan titil á borðinu hjá mér;-)
Kossar
Raggi
Sæl grasekkja!
Já, ég segji það sama og raggi, ef að þessi bók biði eftir mér myndi ég elaust finna mér margar afsakanir. En mér heyrist á lýsingunni að það sé nú fljótgert að taka til...
Íshokkí og körfubolti...meinarðu ekki fyrir Orra?
gvuð hvað ég þekki þessar afsakanir. allt allt allt of létt. er einmitt stödd í einni núna... lúv frá okkur trillunum þrem. soffía.
allt of létt hvað....veit ekki hvar ég er....fíamía
Skrifa ummæli
<< Home