við og kagginn...

síðustu dagar hafa verið magnaðir þar sem við höfum þrætt okkur upp mississippi
ánna frá new orleans. gistum í gær í fæðingarbæ blúsins, clarksdale, þar sem
robert johnson seldi sál sína djöflinum gegn því að sá síðarnefndi kenndi honum
á gítar. og hvort hann gerði... nú erum við hins vegar á fæðingarstað rokksins
þar sem við röltum um kofann hans elvis og skrifuðum kveðju frá þorra á
grindverkið hans. ásta bílabeib hafði vinsamlegast beðið okkur að setja mynd af
okkur og bílnum á bloggið. nú getur hún séð með eigin augum af hverju hún væri
að missa með því að taka tannlækninn sinn framyfir bíltúr um endagarnir ameríku
með okkur.
born to be wild...
orri.

1 Comments:
jeeeeeeeee....... Þið eruð flottust. Við Tannsi erum græn af öfund. mbk.áh
Skrifa ummæli
<< Home