Við afríska húsið

Við skoðuðum Melrose plantekruna. Þarna er Eyja með nýja fjölskyldumeðliminn,
Nönnu, fyrir framan "afríska húsið", hús húsbóndanna var öllu veglegra. Annars
var margt sérstakt við þetta tiltekna býli vegna þess m.a. að húsbóndinn gaf
einum þrælnum sínum húsið þegar hann dó. Með þeim þræl hafði hann búið til tíu
börn. Konan hélt áfram að halda þræla og keypti áður en yfir lauk frelsi fyrir
tvö af svörtu börnunum sínum og eitt barnabarn. Seinna bjó þarna svört
eldabuska sem fór að mála og er í dag fræg fyrir barnalegar myndir sem sýna
daglegt líf svarts fólks frá þessum tíma. Kannski hafa einhverjir heyrt um
hana, Clemintine Hunter hét hún.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home