miðvikudagur, apríl 20, 2005

Eins og í íslenskum sumarbústað...

Undanfarna tvo daga höfum við verið í kofa hér rétt utan við bæinn Taos í Nýju Mexíkó. Þetta er eiginlega alveg eins og að vera í sumarbústað á Íslandi að vori til. Það snjóaði hér í síðustu viku og í hlíðinni hér fyrir ofan má sjá restina af þeim snjó. Kofinn okkar stendur við á (ekki þó Rio Grande sem er hérna við hliðina) og krakkarnir geta hlaupið hér yfir brúnna og leikið við hundana þrjá sem búa hjá fólkinu sem rekur staðinn. Í gær grilluðum við og spiluðum svo rommí við krakkana langt fram á kvöld. Það er mjög notarlegt að vera í kofa með eldhúsi, kamínu, verönd og lækjarnið, sérstaklega eftir öll vegamótelin.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

hae hae fraebaer blogg sida. Var bara ad fretta af henni fra Disu fraenku i fyrradag. Bunar ad skoda alla ferdasoguna ykkar, ekkert sma interesant! Verd heldur ofundsjuk her i Aussie. Hlokkum til ad fylgjast meira med ykkur, kengurukossar og koalaknus Sigrun og Amy.
P.S. otrulega godur nyji Slowblow, mikid notadur vid laerdominn hja mer

7:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Í Cambridge eru 30 gráður... Dásamleg tilbreyting frá slydden pa Island. Þið vitið væntanlega hvað þið eigið í vændum - sjáumst á rúntinum. T & kó.

1:06 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

hæ fjölskylda,

sumardagurinn fyrsti mættur og aldrei þessu vant blíða og milt veður. Við erum bara að spóka okkur úti við og njóta frídagsins. Skoðum ferðasöguna ykkar oft og gleðjumst með ykkur. Góð frétt að þið séuð að leita að íbúð. Náið þið nokkuð útskriftarveislu 28.maí???

kv. Anna Sóley og hinir sveitungarnir

3:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Æji hvað litla sys er farin að sakna ykkar. Mest er ég þó farin að hlakka til að fá að komast í myndirnar úr ferðalaginu þegar þið komið heim, veggirnir mínir eru nebbla alveg meira en tómir hérna á Selfossinu. Birtan og Sólin biðja æðislega vel að heilsa frá klakanum kalda þó sumardagurinn fyrsti sé víst kominn og farinn. Elskum ykkur mest ...og knúsist þið svo fyrir okkur :* kv.litla systan og stóra barnið hennar ;)

7:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Yndislegt að fá kortið með myndunum frá Sedona, vakt upp góðar minningar. Gangi ykkur allt í haginn. Úgga

10:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Elskurnar mínar, yndislegt að fylgjast með ævintýrinu ykkar. Get ekki beðið eftir að fara með ykkur til San Cristobal! Frábært að við hittumst í sumar áður en við flytjum til Valencia í ágúst. Er alltaf að hugsa til ykkar 1000 knús og kossar frá öllum á Grenimel
Sassa frænka
P.s. Strákarnir senda bestu kveðjur til Eyju og Kára, finnst þau frekar heppin að upplifa öll þessi ævintýri.

6:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home