Adobe hús í Santa Fe
Ég er rosalega hrifin af þessum "adobe" húsum hér í Nýju Mexíkó. Þau eru búin
til úr rauðum jarðvegi, kúaskít og heyi og passar sérstaklega vel inn í
náttúruna hérna. Santa Fe er mjög fallegur bær eins og Taos og þar eru flest
húsin í þessum adobe stíl, þó líklega séu gömlu indjánaaðferðirnar ekki enn
notaðar nema í einstaka tilfellum. Í Santa Fe fórum við m.a. á George O'keeffe
safnið sem var skemmtilegt, ekki síst fyrir krakkana því við horfðum á
heimildarmynd um listakonuna og keyptum barnabók sem segir svo skemmtilega frá
þessari óvenjulegu konu. Eyja vill reyndar sem mest vera í bókabúðum og er því
mjög ánægð með síðustu tvo bæi sem hafa verið fullir af búðum með bæði nýjar og
notaðar bækur. Hún er meira að segja farin að lesa smá ensku.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home