Sedona
Arizona fylki er rosalega fallegt. Þar er að sjálfsögðu Grand Canyon, magnað
og ótrúlegt. Úgga hafði bent okkur á að keyra til Sedona og þar í kring og
gefið okkur bók áður en við lögðum af stað sem sýndi ótrúlegt landslagið, rauð
fjöllin og ójafna klettana í eyðimörkinni. Þetta svæði er að mínu mati jafnvel
enn fallegra en Grand Canyon. Yfir fjörtíu klassískir Vestrar hafa verið teknir
upp þarna í grennd við Sedona. Mér varð hugsað til Ragga og Nonna og
kúrekamyndanna sem við sáum saman í Bólstaðarhlíðinni þegar maður leigði
vídeótæki og fékk þrjár spólur með. Þó að ég hafi oftast verið að bíða eftir
að aðal kúrekinn hitti saklausu bóndadótturina eða góðhjörtuðu hóruna í
myndunum þá mundi ég samt eftir þessum bakgrunni og í huga mér birtust
endalausar kúrekamyndir. Þarna í Sedona stoppuðum við í eina nótt og tvo daga
og fórum m.a. í Slide Rock þar sem krakkarnir gátu rennt sér niður ískalda á.
Þrátt fyrir ýmis íþróttameiðsl þá skemmtum við okkur stórvel í garðinum.
Verst að geta ekki sent með videoupptökuna af þeim renna sér niður strauminn
því það er bráðfyndið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home