laugardagur, apríl 09, 2005

Með góðu fólki

Það er svo langt síðan ég hef skrifað og svo margt búið að gerast sem mig langar að segja frá að ég veit varla hvar á að byrja. Það sem hefur einkennt undanfarnar tvær vikur er að við höfum verið með mörgu góðu fólki.
Þegar við vorum í Mexíkóborg var vel hugsað um okkur. Við gistum aftur hjá Lolita og Carlos í tvær nætur og þau dekruðu endalaust við okkur. Við hittum Victor, annan bróður Neto, og hans fjölskyldu. Með þeim fórum við til Xochimilco sem er nokkurs konar Feneyjar Mexíkó. Þar sigldum við um sýki ásamt mýmörgum öðrum bátum, mariachi hljómsveitum og stórfjölskyldum. Það var eldað fyrir okkur á öðrum báti og við drukkum bjór og borðuðum ljúffengan mexíkanskan mat. Síðan fórum við með þeim í safn Dolores Alba, sem var forrík listakona og módel sem átti marga áhrifaríka vini. Diego Rivera, Frida Kahlo, forsetar ofl. voru vinir hennar og hún átti mikið safn af verkum þeirra. Húsið sjálft er eins og gallerí og ekki er garðurinn síðri, þar spranga um ótal margir páfuglar sem krakkarnir gátu snert, þeir voru svo nálægt okkur. Í Mexíkó heimsóttum við líka vin Neto, Martín, og skoðuðum listaverkin hans. Það var skemmtilegt að koma til hans og konunnar hans og spjalla við þau. Ég var mjög hrifin af íbúðinni þeirra og listaverkum hans, sáum m.a. mjög skemmtileg videoverk.

Þegar við komum til San José tók pabbi á móti okkur og við áttum þrjá góða daga með honum, Jennie, Emily og Sól. Sól er svo skemmtileg og skapgóð að það er alveg yndislegt að vera með henni. Eyja og Kári vildu helst hnoðast með hana allan daginn og gerðu það. Við keyrðum til San Francisco og nágrenni, skoðuðum vínhéruð og litla skrítna bæi með tattúbúllum, bílskúrssölum og grasagörðum.
Hér í Kalíforníu heimsóttum við líka gamla vini frá New York, Ara, Jennifer, Ethan og Cairo. Þau búa á hálfgerðum búgarði í vínhéraði Sonoma í algerri sveitasælu. Jörðin sem þau búa á hefur verið í eigu fjölskyldu Jennifer frá því amma hennar og afi keyptu hana. Við bjuggum í húsi mömmu Jennifer, sem var nánast eins stórkostlegt og húsið í San Cristóbal. Fullt af bókum og fallegum hlutum, arinn osfrv. Í garðinum voru sex risa skjaldbökur frá Afríku en á nóttunni þurftu þær að vera í sjóðandi heitu skjaldbökuhúsi. Við fórum í langan göngutúr um landareignina og sáum hjörð af dádýrum, villta kalkúna og milljón tegundir af villtum blómum. Því miður var batteríið í myndavélinni ákkúrat búið og ég held við eigum engar myndir frá þessu.

Í San Francisco hittum við svo Kristínu og Dave og áttum ljúfan dag með þeim. Fórum í Golden Gate garðinn og kjöftuðum á meðan krakkarnir léku sér. Um kvöldið fórum við á frábæran japanskan mat og ég fékk mér langþráð sushi. Kristín sýndi okkur nýútkomna bók Örvars "Úfin, strokin" og hún er mjög falleg. Ég hlakka til að lesa hana og mæli með að fólk heima kíkji á gripinn. Kristín lánaði okkur líka geisladiska svo nú höfum við eitthvað menningarlegra nesti en Britney Spears og Eminem, sem er reyndar ágæt greyin.

Erum núna nýkomin frá Las Vegas og búin að keyra um Death Valley en við segjum frá því næst.

ps. ég hef alltaf ætlað að skrifa eitthvað um matarupplifanir okkar. Ég veit að Grímur var áhugasamur um súkkulaðikalkúninn. Við smökkuðum einmitt þessa frægu súkkulaðikryddsósu (mole) síðasta daginn okkar í Mexíkó og ég var ekki sérlega hrifin. Á sama stað, eldgömlum veitingarstað í miðborginni frá 1800 og eitthvað, smakkaði ég samt annan sérrétt sem mér þótti magnaður. Það var innbakaður grænn chillipipar fylltur með kjöthakki og ávöxtum, þakinn hvítri nougatsósu! Ótrúlega sérstakt og gott.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

hæ hó gott fólk---

til hamingju með nýja áfangan í reisunni - og með skólann þórdís!
1000 takk (tökk) fyrir kortið orri - ég fer ekki til mexíkó án þessa að líta við á þessu verkstæði! og jú Sofandi giggið er afstaðið og ekkert nema gott um það að segja - meira segja eitt bæst við og enn annað væntanlegt á þeim ágæta stað nasa. ég er reyndar ekki eini fjölskyldumeðlimurinn hér á fjölnó sem er að fara að stíga þar á stokk á næstunni því ágæt eiginkona mín er að fara að hita upp fyrir trabant núna á föstudaginn - - hún er nefnilega að meika-ða hérna heima og kominn með einar örn á hælanna suðandi um plötuútgáfu - - - ég er ekki að grínast! Hljómsveitin heitir Donna Mess og þar hafið þið það! og nú blasir björt framtíð við útskriftarnemanum því í stað þess að veltast um í angist yfir yfirvofandi bransa-vændi þá sé ég fyrir mér að silkiprenta boli og annan varning fyrir Donnu Mess auk þess að fljóta með á tónleikareisur og vera þá að selja varning og svona tilheirandi. -það er ekki búið að selja fjölnó enn - - -en - - eitthvað er loftið að ókyrrast - - nú er bara að pressa á Donnu Mess að þéna nógu vel svo við getum frelsað fjölnó undan eihverju nýríkum uppum sem hvítmála allar hæðirnar og breyta fjölnotaskúrnum í eitthvað jeppaskýli!


bið að heilsa og hafið það gott ......on the road!

krissi

11:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

.....já og það eru fleiri að blogga....

http://donnamess.blogspot.com/

kv.

krissi

11:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Hæ hæ
Kaffikveðja úr Bankastrætinu....ég bíð eftir að sjá svipinn á ykkur þegar þig stígið inní nýja kaffihúsið...já það er búið að taka allt í gegn hjá okkur !!! en mexíkóski andinn fékk að vera óáreittur...og góða kaffið að sjálfsögðu ennþá til staðar. Takk fyrir póstkortin, þau glöddu okkur.
Erum á leið til USA á stóra kaffiráðstefnu í Seattle.
Ragga og Co.

6:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Gaman að heyra loksins fra ykkur. Frabærar myndir.
Ég fór um daginn á afmælistónleika megasar og vil koma áleiðis hér og nú þökkum til Gríms.
knús frá höllu

8:49 f.h.  
Blogger Orri, Þórdís, Eyja og Kári segir...

Hei
eg get lika sett komment a kommentin! Kikti a sidu Donnu mess og list vel a bandid. Hlakka til ad sja thaer a tonleikum i sumar.
Thordis

5:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home