fimmtudagur, mars 31, 2005

hljóðfærasmíði í chiapas...

það er náttúrulega ekki vinnandi vegur að skrifa eitthvað af viti jafn óðum um það sem á vegi okkar verður í þessu ferðalagi svo ekki nema brot af okkar upplifun hefur ratað á netið hingað til. hér kemur því smá myndasería frá síðustu vikunni okkar í mexíkó. þegar við fórum loks frá san cristóbal (bær sem ég gæti lofsungið lengur en nokkurt ykkar kærir sig um að hlusta) þá héldum við niður úr fjöllunum í bæ sem heitir chiapa de corzo og liggur við annan svalari endann á dal sem undirritaður fór að kalla "dal dauðans" eftir að við keyrðum í gegnum hann þverann og endilangann. allavega, bærinn er þekktur fyrir duglega mótspyrnu við hvers kyns utanaðkomandi yfirvald og segir sagan að þegar spánverjar hófu lándnám sitt á þessu svæði á fyrri hluta 16. aldar þá gengu allri íbúar chiapa de corzo fram á brún sumiero gilsins og stukku framaf 1000 metra háum klettunum, konur og börn, ungir sem aldnir. örlög sem þau kusu frekar en þrælatilboð spánverja. núna er bærinn meðal annars frægur fyrir að vera annar af tveimur miðpunktum marimbusmíði í mexíkó svo fyrsta kvöldið okkar leituðum við uppi mann af þriðju kynslóð marimbusmiða sem sýndi okkur allt sem við vildum vita um þetta fyrirbæri. ég var kominn með veskið hálfa leið uppúr vasanum og farinn að plotta dhl sendingu fyrir þriggja metra breitt hljóðfærið til íslands enda kostar þetta ekkert, 6 áttunda handsmíðuð marimba í fullri stærð fyrir 65.000 kall, fyrir þá sem hafa áhuga á slíkum upplýsingum. nema hvað, í hita samræðna okkar um mismunandi hljómfegurð ólíkra viðartegunda missti maðurinn það útúr sér að munurinn á mexíkóskum marimbum og þeim sem smíðaðar eru í guatemala er sá að þær mexíkósku hafa hreinni og glaðlegri hljóm en þær frá guatemala sem hafa víst óræðari, dýpri og melankólískari hljóm. seinni hluti þessarar myndaseríu verður því sendur þaðan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home