fimmtudagur, mars 31, 2005

get the motor running...

get the motor running...

jæja, þá erum við komin á þjóðvegina hér í landi hinna frjálsu. þeir í
útlendingaeftirlitinu í san fransisco voru svo hugrakkir að þeir tóku sénsinn á
því að leifa okkur að vera hér í 90 daga, tilboð sem við getum því miður ekki
nýtt okkur til fullnustu þó það sé freistandi. erum nú á svæði gullgrafara
undir sierra fjöllunum vestur af yoshemite þjóðgarðinum í litlum bæ sem heitir
oakdale og er einn maur af óteljandi í þessari þúfu smábæja hér í kring.
undanfarna tvo daga höfum við verið á eigin bíl en ákváðum samt að tékka á
friskó og lögðum því ekki af stað útá sléttuna fyrr en í dag. borðuðum í the
great american mall í san jose í gær og á the oakdale diner í kvöld. ég finn
mig ískyggilega á heimavelli hér í því sem afi bragi kallaði réttilega
"nornaketil alheimsauðvaldsins", það er eitthvað dáleiðandi við þennan
óraunveruleika sem svífur hér yfir öllu. meira seinna, ætla að stanga borgarann
úr tönnunum yfir sjónvarpinu. guð blessi ameríku.
orrinn.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

Þú ert alls staðar á heimavelli, Orri litli, þú ert þannig. Svo ertu náttlega í svo góðum félagsskap.

Ekki týnast í fjöllunum og í guðanna bænum passið línurnar; við fréttum að nýjasti rétturinn á matseðli Burger King héti "The Enormous Ommilette" eða eitthvað álíka skáld- og girnilegt.

Veturinn kom aftur í nótt á Íslandi, við erum að vona að að hann stoppi stutt núna.

Rokk og ról - Tinna

Ps. Má maður biðja um fjölskyldumynd af ykkur við tækifæri - ómengaða af túrisma og merkilegum fyrirbærum sem á vegi ykkar verða. Bara eina, plíííís.

3:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Elskurnar!
Bara að segja að við lesum bloggið reglulega þótt ekki hafi heyrst mikið í okkur. Ameríski ískápurinn er þakinn kortunum frá Orra og ykkur. Eruð þið viss um að hann sé ekki lifandi??! Hann hrýtur soddann á næturnar.........sem okkur finnst náttúrulega eingöngu notalegt(;
Eyja og Kári, þið erum flottir indjánar. Vonandi getið þið kennt Franzisku nokkra góða indjánaleiki þegar þið komið heim. Mikið verður gaman að sjá ykkur, reynslunni og ævintýrunum ríkari - ó já!

Kossar og knús (besos y brasos!)
Franziska og Helga (Dagur er heima að smíða...)

1:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home