smá frá kára...
hæ, þetta er kári. ég hef synt í tveimur hellum. einn var 20 metra djúpur, hinn var grunnur sum staðar en í miðjunni var hann 15 metra djúpur. ég reyndi að veiða fiskana í þessum sem var grunnur á sumum stöðum en ég gat ekki legið á kút í hinum hellinum. ég hef séð fullt af eðlum og stór hvít og gul fiðrildi. ég er að æfa mig í að stinga mér og einu sinni stakk ég mér alveg beint. fyrst með hendurnar, svo með hausinn, svo með magann og svo með fæturna. ég hef klifrað uppá pýramída þar sem maður getur séð eitthvað sem er alveg eins og slanga og það er hægt að fara inní pýramídann og ég gerði það með pabba og mömmu og eyju og þar var gervi maður og gervi hlébarði. ég hef líka farið inní önnur göng sem var með leirkrukkum og pabbi segir að kannski hafi verið gull í sumum þeirra. það var fullt af leðurblökum þar og líka í hellinum með grunna vatninu en þær voru stærri en í hellinum með leirskálunum. bæ þinn kári.

5 Comments:
Sæl. Gaman að sjá hvaða svaka flakki þið eruð á.
Í sambandi við graduate í kvikmyndatöku, þá reikna ég með að það sé helst Ryerson University inní Toronto sem væri með það. Mitt nám er nefnilega bæði sjónvarp og kvikmyndir, sem ætti að henta mér betur fyrir vinnu heima, þó svo náttúrulega er altlaf draumurinn að selja handrit til Ameríku...
Ég skal samt spyrjast meira um skóla hér í kring og komast að hvað er best,
Kær kveðja,
Raggi
Elsku Kári!
Svakaleg æfintýraferð er þetta, maður! Jóhann er alveg grænn, hann langar svo að koma og hitta þig og skoða leðurblökurnar og bað mig að senda þér kæra kveðju, við erum nefnilega ekki með tölvu heima svo hann getur ekki skrifað sjálfur. Farðu varlega í dýfingunum, þú ert greinilega mjög efnilegur sundkappi.
Næst þegar Jóhann kemur með mér í vinnuna ætlar hann að senda þér línu!
Þín Tinna.
Elsku besti káralingur.
Mikið er gaman að lesa það sem þú skrifar. Þú ert svo flinkur og skemmtilegur. Þú ert líka svo góður í að þekkja dýrin og óhræddur við að halda á þeim. Amma væri miklu hræddari við dýrin en þú.
Ég ætla að biðja Viktor og Yrsu um að skrifa ykkur Eyju.
Amma hugsar um þig á hverjum degi og mig hlakkar rosa mikið til að hitta þig aftur.
Fullt af kossum og knúsum frá mér til þín elsku strákurinn minn, amma Ásdís
Prufa frá Sifu tæknimanni.
Elsku Kárinn hennar ömmu Sifu. Mikið rosalega er gaman að lesa bréfið þitt. Ömmu finnst svo gaman hvað þú ert duglegur að segja okkur frá öllum ævintýrunum. það er bara eins og þú leyfir okkur að taka þátt í þeim með þér. Mikið hlakka ég til að lesa næsta bréf. Ég hef séð hann Ívar vin þinn tvisvar sinnum upp í skóla og reyndar allan bekkinn. Kornelía var að hleypa bekknum inn í stofuna en ég gat ekkert talað við hana því hún horfði bara á krakkana í bekknum. Þú veist að hún passar ykkur svo vel. Risaknús frá Sifu ömmu.
Skrifa ummæli
<< Home