smá frá eyju...
hæ, þetta er eyja. kári er búinn að skrifa svo mikið að ég er í hálfum vandræðum hvað ég ætti að skrifa. mér þætti samt gaman ef einhverjir krakkar gætu skrifað mér og kára. ef þið vitið ekki netfangið er það orrdis@internet.is ég er svoldið smeik við það að fara í sundlaugar á hótelum því að þær eru oftast ísjökul kaldar, en ein hingað til hefur verið volg. ég hlakka svoldið til að fara til bandaríkjanna því þar skil ég alla og þá er líka þæginlegra að tala við einhverja vini. ég og kári tökum með okkur lærdóm, kári tók með sér skriftaræfingabók en mér finnst langbest að æfa mig bæði í dagbók og sögubók. ef þið viljið heyra söguna get ég kannski spurt pabba hvort hann gæti búið til vefsíðu með sögum því að ég held að ykkur finnist sagan mín svoldið spennandi, en ég veit það ekki. á einum veitingastað kostar vatnið 10 pesóa því að það kemur ekki hreint vatn úr vaskinum og oftast ef maður skeinir sér á klósettinu þá verður maður að láta pappírinn í rusl sem er oftast nálægt klósettinu. vill einhver af krökkunum vera svo vænn að ef hann getur beðið mömmu sína eða pabba að senda mér myndir og bréf. þá get ég kannski svarað ykkur eða eitthvað svoleiðis. allt í lagi, ég hugsa að þetta sé nógu langt í bili.
ykkar eyja.
ykkar eyja.

3 Comments:
Elsku Eyja!
Þú ert alveg eins og mexíkósk prinsessa á myndinni með blævænginn! Vonandi finnurðu fleiri volgar sundlaugar. En hvernig er að synda í sjónum? Venst maður honum ekki? Það er svakalega gaman að heyra frá ykkur, endilega haldið áfram að skrifa. Jóhann biður kærlega að heilsa, hann sendir ykkur línu næst þegar hann kemst í tölvu.
Þín Tinna
Elsku besta Eyjan hennar ömmu sinnar.
Mikið er gaman að lesa kveðjuna þína og mikið ertu skemmtileg. Það væri alveg meiriháttar ef pabbi þinn gæti sett dagbókina þína á vefinn eða bara sent hana til mín í tölvupósti. Ég er viss um að dagbókin og sögurnar þínar eru mjög skemmtilegar.
Ég ætla að biðja Viktor og Yrsu um að skrifa ykkur.
Ég hlakka til að sjá þig afut og
svo sendi ég þér fullt af knúsum og kossum elsku besta stelpan mín.
Þín amma Ásdís
Eyjan mín......
Rosaleg finnst ömmu Sifu gaman að lesa það sem þú skrifar. Þú ert líka að velta því fyrir þér hvernig þú getir leyft okkur að lesa dagbókina þína og sögurnar. Það sem þú ekki setur á netið getum við kannski fengið að lesa þegar þú kemur heim í sumar? Veistu það að nú er verið að sýna barnaleikritið Ávaxtakörfuna aftur. Við Salka ætlum að fara næsta sunnudag. Mér dettur þú alltaf í hug þegar ég hugsa um jarðarberið. Mannstu hvað þér fannst gaman að leika það? Elsku stóra stelpan hennar ömmu, hér er fullt af stórum knúsum í loftinu, grýptu eins marga og þú getur, og líka Kári, ef hann vill fleiri knúsa. Sifa amma.......
Skrifa ummæli
<< Home