þriðjudagur, febrúar 08, 2005

aevintyraferd ur strandbaejarplassi vid floann...

jaeja asta, eg se thu hefur tekid myndamalin i thinar hendur. storsnidugt ad skella kortinu med, aetlar thu ad sja um ad uppfaera leidina a kortinu eftir thvi sem afangastodunum fjolgar? en kaera folk, nu sit eg a netbullu i frekar sorglegum litlum bae sem heitir celestún (ekki celestion eins og eg helt fram sidast. var ad hugsa um hatalara) og liggur vid mexikofloa um 90 km. vestur af merida. lonely planet biblian let thetta plass hljoma eins og himnariki a jord en eitthvad hef eg misst ahugan a ad komast thangad ef su er raunin. eg gerdi mer litid til og snoggsteikti a mer lappirnar i gaer, enda ekki um adra daegrastyttingu ad raeda her en huka a strondinni og lata saltrokid undirvinna thad sem solin svo klarar. en fatt er svo med ollu illt ad ekki bodi nokkud gott, i dag hef eg thvi loggilda afsokun fyrir thvi ad fordast solina eins og heitan eldinn (svona verdur skopskinid af of mikilli sol) og skoda skuggahlidar theirra fimm gatna sem thessi baer samanstendur af. nu er eg thvi ad reyna ad skola nidur eitthvad sem er a matsedlinum kallad "cafe" en er hlandvolgur vokvi litid dekkri en kranavatnid i new york. vid forum hins vegar i magnada siglingu i morgun medfram strondinni thar sem vid komum ad monnum ad veida sardinur i net umkringdir graum pelikonum. krakkarnir fengu ad halda a lifandi saehesti sem kom i net mannanna og svo var haldid inn i lonid her i fridlandinu thar sem vid forum a land og skodudum "the petrified forest." thad er s.s. fyrrverandi ferskvatnsskogur sem var sviftur lifsretti sinum thegar hafid ruddist yfir strondina og inn a fenjasvaedid. nu er thetta thvi nokkurs konar draugaskogur og heimkynni alls kyns furdudyra eins og risastorar iguana edlu sem tok a moti okkur uppi einu trenu. thegar vid sigldum thadan saum vid svo storan krokodil sem var ad laedupukast rett utan vid batavikina og komumst ansi naerri honum adur en hann vard feiminn og let sig hverfa aftur i djupid. afram inn lonid thar sem maettu okkur yfir 100 bleikir pelikanar sem voru ad gaeda ser a raekju a grynningunum. eftir ad hafa dolad okkur i kringum tha svolitla stund stefndi baturinn med okkur a fleigiferd beint inni frumskoginn thar sem vid sigldum um syki sem liggur gegnum hluta frumskogarins. thar rett hja tokum vid land og gengum i gegn um svaedi inni skoginum thar sem eru margar ferskvatnsuppsprettur sem mynda tjarnir sem haegt er ad bada sig i. i dag var hins vegar svo mikid i anni ad hun hafdi flaett svoldid inni tjarnirnar og gruggad vatnid svo okkur fannst ekki serlega fysilegt ad stinga okkur, enda krokodillinn enn eyju og kara i fersku minni. en nu eru krakkarnir og thordis a strondinni ad baka sig enn frekar thvi vid aetlum ad taka rutuna a eftir til merida og vera thar i kannski tvo daga adur en vid leigjum bil og dolum okkur a eigin vegum um yukatan skagann. vid thordis erum lika ordin ansi bokathyrst svo vid aetlum ad finna bokabud og kaupa okkur eitthvad ad lesa. solarvorn # 50 er lika ad verda buin. en kaera folk, eg aetla ad rolta ut og athuga hvort eg nai ekki einhverjum ljosmyndum af thessum stad adur en vid holdum i burtu.
kved thvi ad sinni,
orri.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

Krókódílar og sólbruni - þetta er bara eins og á Húsavík!
Þú átt alla mína samúð í kaffileysinu. Þú þyrfti að koma þér upp lítilli moca-hellu sem hægt er að hafa í vasanum og stinga ísamband hvar sem rafmagn finnst. Hellunni fylgir lítil (1-2 bolla) moca-kanna og svo er hægt að fá flóara með stút og alles. Gerðu a.m.k. eitthvað í þessu, hjá Kaffiboð ehf. hefur fólk áhyggjur af því að þetta muni eyðileggja ferðina.
Skál (í kaffi)!
Tinna & co.

12:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Hæ, langaði til að segja að ég fylgist vel með ykkur. Það er ótrúlegt hvað manni hitnar við svona lesnigu. Ég held að ykkur takist bara ansi vel að koma upplifun ykkar til skila til okkar um þetta internet. Frábært með Slóvakíu, ég veit ekki hvort er meira spennandi núið eða framtíðin. Eitt er víst að þið eruð að upplifa draumana ykkar og það verður varla betra en það :)
kveðja Dosti

8:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus segir...

Hjartanlegar hamingjuoskir með Slovakiu, vissi að þetta væri eitthvað fyrir Orra. Eyja og Kári - passiði ykkur á litlu lúmsku kröbbunum sem narta stundum í tásurnar á manni.
Samúð með kaffileysið og það á þessum stað - ótrúlegt.
Úgga

10:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home