Sunnudaginn 23. janúar, 2005 - Tímarit Morgunblaðsins
Sunnudaginn 23. janúar, 2005 - Tímarit Morgunblaðsins
Íbúðarkaup breytast í langferð
Fjögurra manna fjölskylda rífur sig upp úr neyslukapphlaupinu
Þ etta byrjaði þannig að við ákváðum að selja íbúðina okkar og stækka við okkur," segir Þórdís Eyvör Valdimarsdóttir enskukennari, sem lögst er í langferð til Mið- og Norður-Ameríku um nokkurra mánaða skeið, ásamt manni sínum og tveimur börnum.
![]() |
| Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson |
| Kári, Orri, Eyja og Þórdís, í þann mund að leggja í hann. |
Þetta byrjaði þannig að við ákváðum að selja íbúðina okkar og stækka við okkur," segir Þórdís Eyvör Valdimarsdóttir enskukennari, sem lögst er í langferð til Mið- og Norður-Ameríku um nokkurra mánaða skeið, ásamt manni sínum og tveimur börnum. "Við vorum fjögur í 50 fermetra íbúð í Þingholtunum og krakkarnir orðnir sjö og níu ára. Okkur þótti tímabært að skipta um húsnæði, en kúventum síðan. Við spurðum okkur nefnilega að því hvort ekki væri upplagt að við drifum okkur í ferðalag, fyrst við vorum að fá smávegis pening til umráða," segir hún.
Fjölskyldan seldi íbúðina sína um áramótin, losaði sig við flestar veraldlegar eigur og hóf ferðalagið síðastliðinn sunnudag með flugi til Boston. Þaðan flugu þau til Mexíkó-borgar, en hugmyndin er sú að ferðast með bakpoka um Mexíkó, Gvatemala, Kúbu og Kosta Ríka, ef allt gengur að óskum. Í vor er ætlunin svo að lenda á vesturströnd Bandaríkjanna.
"Annars er markmiðið að spila ferðina dálítið eftir eyranu og sjá til hvar okkur langar til að stoppa. Í Mið-Ameríku munum við nýta okkur almenningssamgöngur, en þegar við komum á vesturströndina langar okkur að kaupa bíl, helst gamlan kagga með plastklæðningu á hliðunum," segir hún.
Í Bandaríkjunum ráðgera þau sem stendur að aka gegnum Nevada, Utah, Arizona, Nýju-Mexíkó, Texas, Oklahoma, Louisiana, Mississippi, Tennessee, Kentucky, Ohio og Pennsylvaníu og ljúka ferðalaginu í New York.
Fjölskyldufaðirinn, Orri Jónsson, slagverksleikari og söngvari í dúettinum Slowblow, er menntaður ljósmyndari og hyggst skrá ferðalagið með linsu, en draumur þeirra er jafnframt að ná tengslum við fólkið sem býr á hverjum stað fyrir sig.
"Við viljum rífa okkur upp úr neyslukapphlaupi og efnishyggju og stækka heimsmynd barnanna. Takmarkið er ekki að upplifa ferðina gegnum bílrúðu, heldur leigja húsnæði þar sem okkur líst vel á okkur og leyfa andrúmsloftinu á hverjum stað að síast inn," segir hann.
Viðbrögðin við fyrirætlunum Orra, Þórdísar og barnanna hafa oftast verið jákvæð, segja þau ennfremur. "Viðkvæðið hjá mörgum er: þið eruð að framkvæma drauminn sem mig hefur alltaf dreymt. Aðrir segja: ég myndi aldrei fara út í svona glæfraskap," segir Þórdís.
Nylon og vasahnífur Eyja Orradóttir er níu ára gömul og kveðst ekki alveg viss um hvað krökkunum í skólanum þyki um fyrirhugað ferðalag. "Þau kvöddu mig bara," segir hún.
"Kannski fannst þeim dálítið skrýtið að við ætlum að vera svona lengi í burtu. Mér fannst svolítið skrýtið að síðasta skóladaginn minn sprengdu unglingar flugelda á ganginum, en það var samt ekki til þess að kveðja mig," bætir hún við.
Eyja hefur áður verið í útlöndum og man meðal annars eftir pítsustað og rottu, að eigin sögn. Hún telur ennfremur að það verði "bara gaman" að ferðast á nýjan leik.
Í ferðatösku Eyju eru auk námsbókanna geisladiskur með Nylon, diskur með Birgittu Haukdal, bók, vasadiskó og föt. Allt brýnar nauðsynjar.
Kári Orrason er sjö ára og segist hlakka til að fara til útlanda. "Vinirnir sögðu bara ó, og kvöddu mig svo, þegar þeir vissu að ég væri að fara," segir hann. Hann er reiðubúinn að mæta hverju sem er; pakkaði niður í töskuna sína vasahníf, geisladiski með Sigur Rós, þremur Quarashi-diskum og kíki og langar mikið til þess að sjá einhver framandi dýr í ferðinni. Þá eru krakkarnir spenntir fyrir indjánamenningu, segir Þórdís.
Eyja er með nokkrar námsbækur í farteskinu, til þess að halda sér við efnið, og eitt er víst að enn gildir hið fornkveðna, að sá veit er víða ratar. helga@mbl.is


4 Comments:
Hæ!
Þið tókuð ykkur vel út í mogganum
Svaka afmælis og ástarkveðjur
Raggi
Til lukku með daginn elsku Þórdís!
Söknum ykkar mikið!!
Kveðja úr Garðastrætinu
Til hamingju með daginn Þórdís afmælisgella!
Ég er að gera smá tilraunir með útlitið á síðunni,
Því sumir lentu í því að fá ekki allan textan rétt upp.
Vona að það hafi lagast með því að setja inn einfaldara format.
mbk.áh
Til hamingju með afmælið elsku Þórdís, og góða skemmtun í Vera Cruz!
Eyju og Kára var sárt saknað í afmælisveislu Prins Jóhanns Páls, knús á línuna.
T & E & JP
Skrifa ummæli
<< Home