Boston, 17.janúar
Þá höfum við fundið internet kaffihús í Boston á Newberry street. Ókeypis fyrir þráðlausa og krakkarnir í Miss PacMan.
Flugferðin gekk mjög vel. Fengum heila röð út af fyrir okkur. krakkarnir rosa góð og fullorðinsleg með vasadiskó. Var reyndar smá seinkun á fluginu og hrikaleg bið í útlendingaeftirlitinu en allir voru rólegir. Okkur langaði að hitta Kristínu á vellinum og drekka með henni kaffi en því miður hittumst við ekki.
Það eru strax nokkrir hlutir sem Eyja og Kári eru hissa á. Hvers vegna eru allir lögreglumenn og starfsmenn á flugvöllum með byssur? Til hvers nota þeir þær? Við hvað eru þeir hræddir? Hvað eigum við að gera ef hann miðar á okkur?
Af hverju er svona mikið vatn í klósettinu? Á maður að pissa í þetta eða er það stíflað?
Það er hrikalega kalt hérna, snjór og rakur kuldi. Við bara með Mexikóföt og hlaupum á milli búða og kaffihúsa. Starbucks á öðru hverju horni. Fallegar litlar götur og múrsteinsgangstéttir.
Ætlum núna að taka lest í Sædýrasafnið. Búið að lofa krökkunum að sjá hákarla og risaskjaldbökur. Er ekki enn búinn að finna New England sjarmann sem varð Jonathan Richman að yrkisefni en látum vita ef hann kemur í leitirnar. Krakkarnir hafa miklar áhyggjur af því að flugferðin til Mexíkó á morgun verði jafn löng og sú í gær en við erum búin að lofa þeim betri flugvél en rellunni sem skutlaði okkur hingað. En nú er koffeinið farið að segja til sín og tími til kominn að halda á sædýrasafnið, þ.e.a.s. ef krökkunum tekst að slíta sig frá Miss Pacman.
Kveðjur á klakann...

1 Comments:
Hæ öllsömul!
Lína frænka í vinnunni (eins og venjulega). Gaman að heyra sögur úr ferðinni og pælingar Eyju og Kára. Varðandi New England stemmningu verður maður eiginlega að komast útfyrir Boston - helst norðureftir meðfram ströndinni í fiskiþorp (borða risahumar), eða suður á Cape Cod í skraut-hippastemmningu. Það fannst mér m.k. á sínum tíma. Jæja, þetta var nú bara svona prufa.
Lína
Skrifa ummæli
<< Home