Nýjustu ferðaplön
Jæja, þá eru ferðaplönin komin nokkurn veginn á hreint. Við fljúgum frá Boston 13.maí og millilendum á Íslandi í nokkra klukkutíma áður en við höldum áfram til London. Mamma hittir okkur heima og fer með okkur Slóvakíu sem okkur finnst náttúrulega frábært. Frá London fljúgum við til Búdapest og þaðan tökum við lest til Poprad í Slóvakíu þar sem Orri byrjar á ljósmyndaverkefninu.
Við komum heim 2.júní sem þýðir að ég missi af útskrift Önnu Sóleyjar :( en Eyja nær afmæli Auðar :) Orri þarf að fara aftur út til Slóvakíu í sumar en ég og krakkarnir verðum heima. Síðan reiknum við með að fara öll til Toronto í kringum 10. ágúst.
Þannig er nú það. Endilega verið með augu og eyru opin fyrir leiguhúsnæði fyrir okkur í miðbænum.
Bless í bili, Þórdís
Við komum heim 2.júní sem þýðir að ég missi af útskrift Önnu Sóleyjar :( en Eyja nær afmæli Auðar :) Orri þarf að fara aftur út til Slóvakíu í sumar en ég og krakkarnir verðum heima. Síðan reiknum við með að fara öll til Toronto í kringum 10. ágúst.
Þannig er nú það. Endilega verið með augu og eyru opin fyrir leiguhúsnæði fyrir okkur í miðbænum.
Bless í bili, Þórdís

7 Comments:
Jæja gott að fá plönin ykkar, og er okkur nokkuð sama um útskriftina hennar Önnu Sóleyjar... en þið missið af eurovision og engu slor eurovision heldur með uppáhaldinu okkar henni Selmu. Orri við tökum þetta upp fyrir þig svo að við getum endurtekið leikinn þegar þú kemur til baka. Við lofum að gefa ekki upp úrslitin svo að við skemmum ekki fyrir þér...hehehhehe Ásta er hér hjá mér og við a leið á kúrekatónleika á granrokkkaffi hver veit nema við dönsum línudans í nótt. Knús frá okkur kv. Halla
Hæ gullin mín.
Hvar í veröldinni eruð þið stödd núna? Hvenær komið þið til N.Y.?Hlynur segir að þig getið verið í íbúðinni hans í allt að þrjár vikur í júlí, en þá verður hann í Skotlandi.
Er að deyja úr tilhlökkun. Mikið held ég að Slóvakía verði skemmtilegasti staður í heimi síðustu vikurnar í maí!
Þúsund knús og kossar. Mamma
Halló kalló!
Jæja er þá planið að halda partý á Keflavíkurflugvelli 13.maí? Halla hitti naglann á höfuðið með júróvisjón, þvílík óheppni fyrir ykkur! Og Orri, kannski verður búningaþema, pældu í því!!! En Halla, útskriftin mín er víst merkileg!"#$%
Anna Sóley...moldvarpan er skriðin út...
Halló elskurnar.
Við höfum fylgst með ferðalaginu ykkar og samgleðjumst ykkur innilega.Okkur finnst þetta frábært framtak! Góða skemmtun í Slóvakíu.
Knús til ykkar allra.
Kristín,Gestur,Ólafur Steinar og Anna Karólína
Hæ þið,
smá viðvörun frá mömmu...hún segir að það geti verið ansi kalt þarna. Hún var þarna einhverntímann að vori og fraus.
Spurning um að Ásdís grafi upp vettlinga og svol :)
kv.Anna Sóley
Ætli sé nettenging i Poprad..?
T.
jææææja mann er farið að lengja eftir fréttum núna!
Gleymdu þið nokkuð skíðunum???
kv.Anna Sóley
Skrifa ummæli
<< Home