sunnudagur, apríl 17, 2005

las lygi

komum til vegas um hádegið daginn eftir og leifðum sjokkinu að sýjast inn á strippinu um eftirmiðdaginn. ég var farinn að stórefast um geðheilsu mína undir kvöldmatinn en eftir mjög svo demókratískan díalóg þótti ljóst að það eina rétta í stöðunni væri að skella sér inná planet hollywood og kíla á einn kransæðakokteil. það er heldur engin leið að lýsa þessari borg á þann hátt sem hún á skilið en okkar upplifun var sú að þegar vá-tímabilinu lauk (sem í okkar tilviki tók um 2-3 tíma) vorum við búin að fá nóg. sátt við að hafa komið þangað á sama tíma og við vorum fegin að þurfa aldrei að koma þangað aftur. leyfðum því eyju og kára að stjórna ferðinni daginn eftir og þau fóru með okkur í m&m musterið, á star trek veitingastað og í spilatækjasal á new york hótelinu þar sem þau skelltu sér í kappakstur.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus segir...

það er stærsti contrast í heimi að fara fyrst til Las Vegas og þaðan í Grand Canyon- sjá mesta glimmer- og neonskraut allra tíma og síðan eitt af mestu náttúruundrum USA.
Úgga

9:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home