flagstaff er greinilega gamalt hippabæli, stuðaralímmiðarnir flagga ekki "support our troops" eða "freedom is not free" slagorðum heldur "billion dollar wars, who needs healthcare?" og "love your mother... earth." nú er óneitanlega kominn léttur nýaldafnykur af hippalýðnum og heilsubúllurnar búnar að tileinka sér soho-verðlag en við kokgleyptum stemmninguna í þessum bæ sem náði að sjarmera okkur uppúr skónum. fullt af antík búðum og bókabúðum, plötubúð með notuðum vínyl og besti espresso sem ég hef hingað til smakkað á ferðinni í boði kaffihúss sem heitir "late for the train coffee." ákváðum að slaka á milliríkjakeyrslunni og spóka okkur í flagstaff í tvo daga sem eyja og kári kunnu sannarlega að meta. nú er ég líka að hugsa um að slaka á maraþonblogginu og lesa smá fyrir svefninn. það er nú eitt sem var yndislegt við að koma hingað, allar bækurnar maður! farangurinn hefur því heldur þyngst og stefnir ekki í að það breytist neitt á næstunni. hins vegar hefur reynst okkur erfiðara að finna eitthvað skemmtilegt að hlusta á í bílnum og lýsi ég hérmeð eftir tillögum að on-the-road músík, nýrri eða gamalli. britney spears og eminem hafa haldið uppi stuðinu hingað til og hjálpað okkur að kitla pinnan en eins ágæt og þau nú eru þá væri gott að geta varíerað. og eitt annað... veit einhver um íbúð til leigu í miðbænum í júní og júlí?
meira síðar...
orrinn.
meira síðar...
orrinn.

1 Comments:
Sæl öll,
Ég fann þetta á Skarpi, fréttavef Húsavíkur um daginn:
***Íbúð til leigu í Reykjavík
Þriggja herbergja, tæplega 80 m2, íbúð til leigu í miðbæ Reykjavíkur frá 1. júní 2005.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband á netfangið aggi@aggi.is***
Auður bíður alveg gríðarlega spennt eftir því að Eyja komi heim :)
Bestu kveðjur,
Bogga (Auðar-mamma)
Skrifa ummæli
<< Home